Back to the jobs page

Sjúkraliði með framhaldsnám

Norðurmiðstöð leitar að öflugum sjúkraliða með framhaldsmenntun til að ganga til liðs við okkar frábæra starfsmannahóp. Starfshlutfall og vinnutími er samkomulag. 

Fullt starf Heimahjúkrun - Norðurmiðstöð 103
Apply

Norðurmiðstöð leitar að öflugum sjúkraliða sem lokið hefur framhaldsmenntun til starfa í heimahjúkrun. Starfshlutfall og vinnutími er samkomulag. 

Kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja takast á við fjölbreytt og áhugaverð verkefni sérhæfðra sjúkraliða í heimahjúkrun.

Jákvæðni og liðsheild einkennir starfsstaðinn og er lögð áhersla á þverfaglegt samstarf í samráði við þjónustuþega sem hafa fjölbreyttar hjúkrunarþarfir. Starfið er hluti af samþættri heimaþjónustu heimahjúkrunar, heimastuðnings og endurhæfingateymis. Starfað er eftir gæðastefnu velferðarsviðs og hugmyndafræði heimahjúkrunar. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hjúkrun í heimahúsi, í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar og aðrar heilbrigðisstéttir
  • Sinna sérhæfðri hjúkrunarmeðferð og öðrum hjúkrunarviðfangsefnum sem við á
  • Taka virkan þátt í starfsemi teymis og teymisvinnu
  • Taka þátt í eftirfylgd og mati á hjúkrunaráætlunum í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar

Hæfniskröfur:

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi
  • Framhaldsmenntun á sviði hjúkrunar
  • Reynsla af teymisvinnu og vinna með hjúkrunaráætlun
  • Þekking á sjúkraskrárkerfinu SÖGU
  • Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Íslenskukunnátta C1- skv. evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
  • Ökuréttindi

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • 36 stunda vinnuvika

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sjúkraliðafélagi Íslands.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrefna Guðmundsdóttir, í gegnum netfangið hrefna.gudmundsdottir@reykjavik.is eða í síma 411-1590.

Apply