Deildarstjóri Rafrænnar miðstöðvar
Velferðarsvið leitar að metnaðarfullum deildarstjóra til að stýra rafrænni miðstöð.
Velferðarsvið leitar að metnaðarfullum deildarstjóra til að stýra rafrænni miðstöð. Á vettvangi rafrænnar miðstöðvar er leitast við að leysa úr málum með skjótum og skilvirkum hætti en hún er almennt fyrsti viðkomustaður íbúa í leit að velferðarþjónustu borgarinnar.
Rafræn miðstöð starfar náið með öllum fjórum miðstöðvum borgarinnar þar sem íbúar geta nálgast fjölbreytta þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar á sviði velferðar-, skóla- og frístundaþjónustu.
Deildarstjóri rafrænnar miðstöðvar veitir faglega forystu og leiðir umbætur í þjónustu rafrænnar miðstöðvar. Rafræn miðstöð skiptist í tvö teymi, þjónustuteymi og ráðgjafateymi, annast móttöku umsókna og veitir 2. og 3. stigs símaráðgjöf og leiðbeiningar til íbúa. Jafnframt hefur hún það hlutverk að framfylgja þjónustustefnu.
Í samræmi við mannréttinda- og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð rík áhersla á að starfsstaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk af ólíkum menningarlegum bakgrunni til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rafrænni þjónustu til einstaklinga ásamt móttöku viðskiptavina og leiðbeiningum um þjónustu
- Ábyrgð á faglegu starfi, rekstri, þ.m.t. starfsmannamálum, uppbyggingu og skipulagi
- Ábyrgð á þróun og nýbreytni í þjónustunni
- Yfirsýn yfir starfsemi og að unnið sé á grundvelli gæðaferla og árangursmats
- Samræmingar- og eftirlitshlutverk með þáttum eins og viðmóti, aðgengi og þjónustuferlum
- Ábyrgð á þverfaglegu samstarfi og samvinnu við fagskrifstofur velferðarsviðs, miðstöðvar, svið borgarinnar og samstarfsstofnanir
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
- Viðtæk þekking og reynsla af ráðgjöf
- Reynsla af rafrænni þjónustu
- Reynsla af stjórnun, umbótastarfi og teymisvinnu
- Þekking á lagaumhverfi og stjórnsýslu sveitarfélaga
- Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Metnaður, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
- Íslenskukunnátta C1 (samkvæmt samevrópskum tungumálaramma)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helgi Þór Gunnarsson í síma 411-1111 eða í gegnum tölvupóst, helgi.thor.gunnarsson@reykjavik.is