Back to the jobs page

Teymisstjóri í heimahjúkrun

Norðurmiðstöð auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í stöðu teymisstjóra hjúkrunar við samþætta þjónustu heimahjúkrunar og heimastuðnings. Um er að ræða fullt starf, tímabundið til eins árs. 

Fullt starf Heimahjúkrun - Norðurmiðstöð 103
Apply

Hefur þú áhuga á fjölbreyttu starfi þar sem þú færð tækifæri til að leiða öflugt teymi og vinna þvert á starfseiningar?

Norðurmiðstöð auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í stöðu teymisstjóra hjúkrunar við samþætta þjónustu heimahjúkrunar og heimastuðnings. Um er að ræða fullt starf, tímabundið til eins árs.

Reykjavíkurborg er leiðandi í samþættri heimaþjónustu og veitir þjónustu í fremstu röð. Við í Norðurmiðstöð leitum að hjúkrunarfræðingi til að ganga til liðs við okkar frábæra starfsmannahóp. 

Lögð er rík áhersla á teymisvinnu, samstarf og styðjandi starfsumhverfi þar sem fagmennska og gæði þjónustu eru í forgrunni. Teymisstjóri hefur yfirumsjón með starfsemi teymis og þeirri hjúkrun sem þar er veitt.

Viltu vita meira?- skelltu þá inn umsókn!

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á hjúkrun til notenda
  • Framkvæmd og eftirfylgd hjúkrunaráætlana
  • Umsjón með starfsemi teymis og þeirri hjúkrunarþjónustu sem teymið veitir
  • Þátttakandi í þróun og innleiðingu velferðartækni
  • Er hluti af stjórnendateymi starfsstaðar
  • Tengiliður í þverfaglegu samstarfi
  • Samskipti við heilbrigðisstofnanir og aðra fagaðila
  • Vitjar skjólstæðinga og sinnir sérhæfðri hjúkrun
  • Starfar eftir gæðastefnu velferðarsviðs og hugmyndafræði heimahjúkrunar

Menntun og hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Íslenskukunnátta C1 í samræmi við evrópska tungumálarammann
  • Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Faglegur metnaður og frumkvæði
  • Reynsla af teymisvinnu og af útdeilingu verkefna
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Ökuréttindi
  • Reynsla af öldrunarhjúkrun og/eða hjúkrun langveikra æskileg
  • Þekking á sjúkraskrárkerfinu SÖGU og RAI mælitæki æskileg
  • Reynsla af stjórnun æskileg

Fríðindi í starfi

  • 36 stunda vinnuvika
  • Sund-og menningarkort
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrefna Guðmundsdóttir, í gegnum netfangið hrefna.Gudmundsdottir@reykjavik.iseða síma 411-1590.

Apply