Back to the jobs page

Deildarstjóri

Við látum drauma barna rætast! Viltu bætast í hópinn í Leikskólanum Hofi í Laugardalnum? 

Fullt starf Leikskólinn Hof 105
Apply

Við látum drauma barna rætast! Viltu bætast í samheldin starfsmannahóp á Hofi?

Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólann Hof á deild með yngstu börnunum. Leikskólinn er í Laugardalnum og liggur vel við samgöngu- og reiðhjólaleiðir. Í skólanum eru sex deildir og þar fer fram öflugt starf í samheldnum starfsmannahópi. Lögð er áhersla á skapandi starf, fjölmenningu, útikennslu og lýðræði. Skólinn hefur unnið að þróunarverkefni um sjálfseflingu og félagsfærni og hefur hlotið Regnbogavottun. Einkunnarorð skólans eru virðing, gleði og sköpun. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara nauðsynlegt
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg
  • Stundvísi og faglegur metnaður
  • Frumkvæði, áhugi og vilji til að leita nýrra leiða
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Góð íslenskukunnátta- C1 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Fríðindi í starfi

  • Stytting vinnuvikunnar
  • Ókeypis fæði á vinnutíma
  • Samgöngustyrkur
  • Ókeypis sundkort 
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Menningarkort sem veitir aðgang að listasöfnum og bókasafnskort

Frekari upplýsingar um starfið

Upplýsingar um starfið veita Særún Ármannsdóttir, leikskólastjóri og Stella Marteinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 411-6848 eða á netfangið hof@reykjavik.is.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Staðan er laus 1. ágúst eða eftir samkomulagi og um er að ræða fullt starf.

Apply