Back to the jobs page

Kennari í Fossvogsskóla

Fossvogsskóli óskar eftir umsjónakennara.

Fullt starf Fossvogsskóli 108
Apply

Fossvogsskóli er hverfisskóli staðsettur í Fossvogsdalnum þar sem eru greiðar göngu- og hjólaleiðir í ein fallegustu útivistarsvæði borgarinnar; Elliðaárdalinn og Nauthólsvíkina. Nemendafjöldi er um 360 í 1. – 7. bekk og starfsmenn eru rúmlega 50. 

Fossvogsskóli hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Hann er þátttakandi í Grænfánaverkefni Landverndar og verkefni um Heilsueflandi grunnskóla og vinnustaðar. Í skólanum er unnið með Byrjendalæsi og byggt er á teymiskennslu og samvinnu kennara. Fossvogsskóli vinnur í anda Uppeldis til ábyrgðar og áhersla er á verk- og listgreinar, útivist og fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og er tilbúinn til þess að taka þátt í skólaþróun.

Gildi skólans eru vinátta - virðing - vellíðan.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá
  • Sinnir daglegu fagstarfi og kennslu barna á sínu skólastigi
  • Vinnur að skólaþróun og uppbyggingu skólasamfélagsins ásamt samstarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu
  • Starfar samkvæmt stefnu skólans
  • Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Sérhæfing eða reynsla af kennslu á yngsta eða miðstigi
  • Áhugi á skólaþróun
  • Reynsla af foreldrastarfi
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði, faglegur metnaður og góð samskiptahæfni
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði, bæði í ræðu og riti
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af teymisvinnu í grunnskóla
  • Hreint sakarvottorð

Umsækjendur eru beðnir um að sýna fram á í kynningarbréfi og ferilskrá hvernig þeir uppfylla hverja hæfniskröfu. Þeir umsækjendur sem uppfylla best allar hæfniskröfur og sýna fram á það með skýrum hætti í umsókn sinni verða boðaðir í viðtal.

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, „Látum draumana rætast“, þar sem leiðarljósin eru sköpun, jafnrétti, virkni, heilsuefling og þátttaka barna í skólastarfinu, aukið samstarf og fagmennska. Einnig er unnið eftir stefnumótun verkefnisins „Betri borg fyrir börn“ og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Jafnframt er krafist hreins sakavottorðs í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Helen Eiðsdóttir skólastjóri í síma 411-7570/6977733.

Starfið er laust í 100% starfshlutfall. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsóknarfrestur er til að með 06. apríl nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá um menntun og fyrri störf og kynningarbréf.

Apply