Back to the jobs page

Spennandi sumarstarf í íbúðarkjarna í Grafarvogi

Íbúðakjarninn Mururimi 4 óskar eftir öflugum og jákvæðum stuðningsfulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt sumarstarf með skemmtilegu fólki. 

Fullt starf Íbúðakjarni Mururima 4 112
Apply

Í íbúðakjarnanum Mururima 4 starfar kraftmikill og skemmtilegur starfsmannahópur sem tekur vel á móti nýju fólki. Leitast er eftir að skapa jákvætt og heilsueflandi starfsmannaumhverfi sem skilar sér í þjónustu við íbúa.

Unnið er eftir hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar. Starf stuðningsfulltrúa byggir á stefnu Reykjavíkurborgar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum.

Starfshlutfall er samkomulag um fullt starf eða hlutastarf og er laus frá 1. maí til 15. ágúst. Íbúakjarninn Mururimi 4 er með sólahringsþjónustu en um er að ræða vaktavinnu sem skiptist í dag-, kvöld- og helgarvaktir (í einstökum tilfellum næturvaktir) og viðkomandi þarf að geta unnið allar vaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi fyrir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Gilt ökuskírteini er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

  • Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
  • Nánari upplýsingar um starfið veitir Sævar Kári Bogason forstöðumaður í tölvupóst saevar.kari.bogason@reykjavik.is.
Apply