Back to the jobs page

Atferlisfræðingur, þroskaþjálfi, leikskólasérkennari eða starfsmaður með sálfræðimenntun

Atferlisfræðingur, Þroskaþjálfi, leikskólasérkennari eða starfsmaður með sálfræðimenntun óskast til starfa í leikskólanum Suðurborg

Fullt starf Leikskólinn Suðurborg 111
Apply

Laust er til umsóknar starf við sérkennslu í leikskólanum Suðurborg. Í leikskólanum starfar teymi þroskaþjálfa og annara fagmenntaðra starfsmanna við atferlisíhlutun barna með einhverfu. Leikskólinn Suðurborg er sérhæfður á þessu sviði og ráðgjafaskóli þegar kemur að atferlisíhlutun. Viðkomandi mun starfa í sérkennsluteymi leikskólans undir leiðsögn sérkennslustjóra og ráðgjafa frá þjónustumiðstöð.

Suðurborg er 6 deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á stuðning við jákvæða hegðun, sterka félagsfærni og að efla mál og læsi.

Starfið er laust nú þegar. Um er að ræða ótímabundið starf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rún Gylfadóttir í síma 411-3220 og tölvupósti anna.run.gylfadottir@reykjavik.is

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir í samstarfi við sérkennslustjóra og fylgja henni eftir.
  • Að veita barni viðeigandi leiðsögn og stuðning í starfi leikskólans.
  • Að vinna eftir aðferðum atferlisíhlutunar.
  • Að leggja inn PECS boðskiptakerfi.
  • Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og ráðgjafa.
  • Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu og öðrum störfum innan leikskólans sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Þroskaþjálfamenntun, leikskólasérkennaramenntun, sálfræðimenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sérkennslu æskileg.
  • Þekking á atferlisíhlutun kostur.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta bæði í rituðu og töluðu máli.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt íslenska tungumála rammanum.

Fríðindi í starfi

  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Menningarkort bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
Apply