Back to the jobs page

Stuðningsfulltrúi óskast í leikskólann Nóaborg

Leikskólinn Nóaborg, Stangarholti 11 óskar eftir að ráða nú þegar stuðningsfulltrúa til að sinna stuðningi við barn með sérþarfir. 

Fullt starf Leikskólinn Nóaborg 105
Apply

Leikskólinn Nóaborg er staðsettur í Stangarholti 11, rétt ofan við Hlemm. Einkunnarorð leikskólans eru Leikum-Lærum- Njótum. Leikskólinn leggur áherslu á læsi og íslenskt mál auk þess sem Nóaborg er þátttakandi í þróunarverkefni þar sem unnið er með tónlist.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Hæfniskröfur:

-Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með reynslu af sérkennslu

-Sjálfstæð vinnubrögð

-Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

-Íslenskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið.

-Hreint sakavottorð

-Reynsla af leikskólastarfi æskileg

-Faglegur metnaður og brennandi áhugi á starfi með börnum

-Frumkvæði í starfi

Fríðindi í starf

-36 stunda vinnuvika

-Sundkort

-Samgöngustyrkur

-Menningarkort

-Líkamsræktarstyrkur

-Frítt fæði

-Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna þegar börnin hafa náð eins árs aldri

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félag leikskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri í síma 693-9830 eða með tölvupósti á netfangið anna.margret.olafsdottir@reykjavik.is

Apply