Back to the jobs page

Spennandi starf teymisstjóra í íbúðakjarna í Grafarvogi

Auglýst er eftir metnaðarfullum og reyndum teymisstjóra í íbúðakjarna í Mururima 4

Um 100% starf er að ræða þar sem teymisstjóri vinnur 50% fagstarf í dagvinnu og 50% vaktavinnustarf á dag-, kvöld- og helgarvöktum. 

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Fullt starf Íbúðakjarni Mururima 4 112
Apply

Almennt um starfið

Hlutverk kjarnans er að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og auka lífsgæði íbúa með því að efla færni þeirra til að lifa sjálfstæðu og innihaldsríku lífi, innan og utan heimilis. Starfið er bæði krefjandi og skemmtilegt, en þjónustan tekur mið að því að mæta þörfum íbúa út frá hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn. Rík áhersla er lögð á jákvæð og uppbyggileg samskipti við íbúa, aðstandendur og samstarfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð, umsjón með framkvæmd einstaklingsbundinna þjónustuáætlana og einstaklingsáætlana og leiðsögn til starfsfólks.
  • Auka lífsgæði og sjálfstæði þjónustunotenda, efla færni á öllum sviðum, stuðla að jákvæðum samskiptum og jákvæðri sjálfsmynd.
  • Stýrir teymum þjónustunotenda og ber ábyrgð á útdeilingu verkefna.
  • Þátttaka í þróunar- og umbótavinnu varðandi faglegt starf.
  • Stuðlar að og tekur þátt í notendasamráði og þverfaglegu samstarfi, bæði innan og utan Reykjavíkurborgar.
  • Stuðar að jákvæðum samskiptum við þjónustunotendur, aðstandendur og annað samstarfsfólk.
  • Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs og Reykjavíkurborgar.

Hæfniskröfur

  • Starfsréttindi sem þroskaþjálfi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla sem teymisstjóri er kostur
  • Reynsla og þekking á þjónandi leiðsögn, hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og valdeflingu.
  • Mentor í þjónandi leiðsögn er kostur.
  • Reynsla af starfi með einstaklingum með flóknar og fjölbreyttar þjónustuþarfir.
  • Reynsla af starfi með einstaklingum með fatlanir er kostur.
  • Þekking og reynsla af myndrænu skipulagi er æskileg.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Reynsla af tenglastarfi og þverfaglegu samstarfi við stofnanir á borð við heilsugæsluna og sérfræðiteymi um nauðung og þvingun er kostur.
  • Góð íslenskukunnátta. C1 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sævar Kári Bogason á tölvupóstfangið saevar.kari.bogason@reykjavik.is

Fríðindi í starfi

  • Menningarkort - bókasafnskort og frítt á söfn
  • Samgöngusamningur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur
Apply