Back to the jobs page

Verkefnastjóri gatna- og umferðalýsingar

Reykjavíkurborg leitar að verkefnastjóra í Tækniþjónustu á Skrifstofu Borgarlands til að stýra verkefnum og taka þátt í rekstri og viðhaldi á gatnalýsingu og umferðaljósum borgarinnar.

Fullt starf Tækniþjónusta 105
Apply

Umhverfis- og Skipulagssvið leitar að drífandi einstaklingi til að stýra og vinna að viðhaldi á sviði gatnalýsingar og umferðarljósa á borgarlandinu. Verkefnin krefjast mikillar þverfaglegrar samvinnu bæði innan fagsviða Reykjavíkurborgar sem og annarra hagsmunaaðila.

Verkefnastjórinn starfar innan einingar Tækniþjónustunnar á Skrifstofu Borgarlandsins og ber meginábyrgð á skipulagningu, framkvæmd eftirfylgni verkefna er varða stýrikerfi og rekstur gatnalýsingar og umferðarljósa borgarinnar. Starfshlutverkið felur í sér verkefnastýringu, rýni á tæknigögnum, prófanir, bilanagreiningu, samhæfingu við verktaka og innri aðila, auk umbótavinnu og þátttöku í þróun á gatnalýsingar- og umferðarljósastýrikerfum í borgarumhverfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber faglega ábyrgð á verkefnastýringu tengdri gatnalýsingar- og umferðarljósakerfum.
  • Skipuleggur og fylgir eftir rekstrarverkefnum í samráði við hönnuði, teymi, verktaka og aðra hagaðila.
  • Skilgreinir og fylgir eftir verkefna- og viðhaldsáætlunum og sér um kostnaðarmat, verkáætlanir og framvinduskýrslur.
  • Sinnir viðhaldi og bilanagreiningu á gatnalýsingar- og umferðarljósakerfum ásamt prófunum á búnaði.
  • Upplýsingagjöf og utanumhald með verkefnum og verklokum.
  • Tekur þátt í innleiðingu á nýjum lausnum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Rafmagnstæknifræðingur, rafmagnsverkfræðingur eða önnur sambærileg menntun. Sveinspróf í rafiðn er kostur.
  • Almenn þekking og reynsla af sterk- og veikstraums tækni.
  • Reynsla af vinnu við stýrikerfi gatnalýsinga- og umferðarljósakerfa er kostur.
  • Almenn ökuréttindi eru skilyrði.
  • Reynsla af verkefnastjórnun, greiningu, skýrslugerð og framsetningu upplýsinga er skilyrði.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Íslenskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma og enskukunnátta B2.
  • Reynslu af notkun á skynjaratækni í stýribúnaði.
  • Reynsla af orkudreifikerfum og vinnu með PLC iðnstýribúnað er kostur.

Nánar um starfið

  • Starf verkefnastjóra er fjölbreytt og spennandi starf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu.
  • Um er að ræða framtíðarstarf og er æskilegt að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
  • Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
  • Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristján Hallvarðsson með því að senda tölvupóst á kristjan.hallvardsson@reykjavik.is.
  • Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026.
Apply