Kennari á yngsta- og miðstigi í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli auglýsir eftir kennara á yngsta- og miðstig. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill bætast við mjög gott kennarateymi í góðu og jákvæðu umhverfi.
Við auglýsum eftir kennara á yngsta- og miðstig. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill bætast við mjög gott kennarateymi í góðu og jákvæðu umhverfi.
Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins en skólinn er safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 108 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.
Helstu verkefni
- Annast kennslu í samráði við skólastjórnendur og árgangateymi.
- Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
Menntunarkröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
- Hæfni í samskiptum.
- Faglegur metnaður.
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
- Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórhildur Þorbergsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 411-7700 eða tölvupósti Thorhildur.Thorbergsdottir@reykjavik.iseða Guðlaug Sturlaugsdóttir netfang gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is