Back to the jobs page

Jöklasel 2 / Brekknaás 6 vantar fleira fólk í starfsmannahópinn!

Heimilið Jöklasel vantar flott starfsfólk inn í starfsmannahópinn. Við erum nýflutt í glæsilegt húsnæði í Brekknaási 6 í Árbæ. 

Á heimilinu býr fólk með einhverfu. Allir dagar hafa upp á eitthvað nýtt að bjóða og eru engir dagar eins!

Fullt starf Íbúðakjarni Jöklaseli 2 109
Apply

Mikið umbótarstarf hefur átt sér stað í starfseminni í Jöklaseli þar sem markmiðið er að veita framúrskarandi þjónustu við íbúa. Unnið er á blönduðum vöktum og er starfshlutfall eftir samkomulagi. Jöklasel er þekkt fyrir góðan móral og samheldinn starfsmannahóp sem tekur vel á móti nýju fólki! 

Starf í Jöklaseli veitir frábæra reynslu fyrir framtíðarstörf á vinnumarkaði og lítur einstaklega vel út á ferilskrá.

Helstu verkefni og ábyrgð

Stuðningur og aðstoð við íbúa við allar athafnir daglegs lífs.

Stuðningur og aðstoð sem gera íbúum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn. Í Jöklaseli starfar frábær og kraftmikill hópur starfsfólks og einkennist vinnustaðurinn af gleði og jákvæðni.

Hæfniskröfur

Góð almenn menntun.

Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.

Reynsla af tákn með tali.

Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.

Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.

Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Gerð er krafa um bílpróf.

Fríðindi

Heilsustyrkur

Samgöngustyrkur

Menningakort Reykjavíkurborgar

Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar

Fjölmörg tækifæri til fræðslu og starfsþróunar

Frekari upplýsingar um starfið

Veitir Stefanía Smáradóttir, stefania.smaradottir@reykjavik.is

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags

Apply