Öryggisvörður – Vitatorg/þjónustuíbúðir - sumarstarf
Vesturmiðstöð óskar eftir að ráða starfsmann til að sinna öryggisgæslu á Vitatorgi. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu, kvöld- og næturvaktir. Umsækjandi þarf að vera eldri en 20 ára.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öryggisvarsla og eftirlit með íbúðum og húseignum á Lindargötu 57-59-61 og 66
- Eftirlitsgöngur skv. eftirlitskerfi
- Fylgjast með öryggiskerfi hússins
- Mikil samskipti við íbúa og gesti Vitatorgs
- Bregðast við og hafa samskipti við íbúa sem þurfa að neyðaraðstoð að halda
- Önnur þau verkefni sem falin eru af yfirmanni
Hæfniskröfur
- Reynsla sem öryggisvörður æskileg
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Vandvirkni og sjálfstæði í starfi
- Sveigjanleiki í starfi
- Getu til að bregðast við óvæntum aðstæðum
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hróðný Lund, deildarstjóri heimaþjónustu í gegnum netfangið hrodny.lund@reykjavik.is
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis