Stuðningsfulltrúi í Liðsaukann
Liðsaukinn óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í sértækt búsetuteymi sem veitir stuðning á heimilum víðs vegar um Reykjavík.
Markmið starfseminnar er að veita einstaklingum með fjölþættan vanda stuðning við sjálfstæða búsetu. Starfsemi teymisins byggir á stefnu Reykjavíkurborgar um einstaklingsmiðaða þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, skaðaminnkun, aðferðum Þjónandi leiðsagnar og valdeflingu. Þjónustan miðast við að auka sjálfstæði, efla færni og lífsgæði notenda.
Unnið er á vöktum allan sólarhringinn, dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
- Eftirfylgd þjónustuáætlana og verklagsreglna undir verkstjórn teymisstjóra og forstöðumanns í samstarfi við þjónustunotendur.
- Stuðningur við athafnir daglegs lífs.
- Hvatning og stuðningur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
Hæfnikröfur
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með einstaklingum með flóknar og fjölbreyttar þjónustuþarfir æskileg.
- Reynsla af starfi með einstaklingum með hegðunar- og/eða vímuefnavanda æskileg.
- Góð hæfni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta. B2 eða hærra samkvæmt evrópskum tungumálaramma.
- Ökuréttindi B.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólveig Dögg Birgisdóttir í síma 821-7021 og tölvupósti solveig.dogg.birgisdottir@reykjavik.is