Back to the jobs page

Umsjónarkennari á yngsta stigi

Melaskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stigi í 100% stöðu til framtíðar. 

Fullt starf Melaskóli 107
Apply

Melaskóli er rótgróinn grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 520 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á menntun og vellíðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góð samskipti við aðstandendur. Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.

Við leitum að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á skólastarfi. Einstaklingi sem hefur óbilandi trú á nemendum, áhuga á menntun þeirra og velferð og er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf. 

Í hverjum árgangi eru öflug teymi kennara sem vinnur þétt saman að skipulagi og kennslu. 

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Annast kennslu nemenda, undirbúning og námsmat í samstarfi við aðra starfsmenn skólans
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við aðstandendur og annað fagfólk

Helstu menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Óbilandi áhuga á að vinna með börnum
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum 
  • Faglegur metnaður og frumkvæði
  • Mjög góð íslenskukunnátta (C2)
  • Hreint sakarvottorð

Staðan er laus frá 1. ágúst 2026.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ.

Nánari upplýsingar veitir Harpa Reynisdóttir skólastjóri, harpa.reynisdottir@reykjavik.is.

Apply