Umsjónarkennari á yngsta stigi
Melaskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stigi í 100% stöðu til framtíðar.
Melaskóli er rótgróinn grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 520 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á menntun og vellíðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góð samskipti við aðstandendur. Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.
Við leitum að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á skólastarfi. Einstaklingi sem hefur óbilandi trú á nemendum, áhuga á menntun þeirra og velferð og er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf.
Í hverjum árgangi eru öflug teymi kennara sem vinnur þétt saman að skipulagi og kennslu.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Annast kennslu nemenda, undirbúning og námsmat í samstarfi við aðra starfsmenn skólans
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við aðstandendur og annað fagfólk
Helstu menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu
- Óbilandi áhuga á að vinna með börnum
- Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Mjög góð íslenskukunnátta (C2)
- Hreint sakarvottorð
Staðan er laus frá 1. ágúst 2026.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ.
Nánari upplýsingar veitir Harpa Reynisdóttir skólastjóri, harpa.reynisdottir@reykjavik.is.