Back to the jobs page

Umsjónarkennari í Melaskóla frá 1. ágúst 2026

Melaskóli leitar að umsjónarkennurum í 100% starf til framtíðar.

Um er að ræða umsjónarkennslu bæði á yngsta stigi og miðstigi. 

Fullt starf Melaskóli 107
Apply

Melaskóli er grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 500 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, vellíðan nemenda og góð samskipti. Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.

Við leitum að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á skólastarfi. Einstaklingi sem hefur óbilandi trú á nemendum, áhuga á menntun þeirra og velferð og er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Annast kennslu nemenda, undirbúning og námsmat í samstarfi og samráði við aðra kennara, skólastjórnendur og annað fagfólk
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk

Helstu menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla af kennslu æskileg ásamt óbilandi áhuga á að vinna með börnum
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum 
  • Faglegur metnaður og frumkvæði
  • Mjög góð íslenskukunnátta (C2)
  • Hreint sakarvottorð

Um er að ræða 100% starf til framtíðar.

Nánari upplýsingar veitir Harpa Reynisdóttir skólastjóri, harpa.reynisdottir@rvkskolar.is, Björg Melsted aðstoðarskólastjóri bjorg.melsted@rvkskolar.is og Helga Jóna Pálmadóttir aðstoðarskólastjóri, helga.jona.palmadottir@rvkskolar.is.

Apply