Stuðningsfulltrúi á heimili fyrir börn - sumarstarf 2026
Spennandi sumarstarf í boði á heimili fyrir börn
Heimili fyrir börn óskar eftir ábyrgum og metnaðarfullum einstaklingi í starf stuðningsfulltrúa í sumarstarf.
Markmið þjónustunnar er að búa börnum hlýlegt, friðsælt og öruggt heimili með hliðsjón af einstaklingsbundnum þroska, getu og aldri þeirra. Jafnframt að tryggja góð og jákvæð samskipti við foreldra/forsjáraðila.
Um er að ræða nýlega starfsemi þar sem börn eru þjónustuð í íbúðum þeirra. Sólarhringsþjónusta er veitt á heimilinu.
Spennandi tækifæri fyrir kraftmikla og áhugasama einstaklinga sem hafa áhuga á að eyða sumrinu í skemmtilegum hópi starfsmanna og íbúa.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Styður og aðstoðar íbúa við allar athafnir daglegs lífs og því sem við viðkemur heimilishaldi.
- Styður einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. rækta félagstengsl, stunda afþreyingu, sækja menningarviðburði og íþróttir.
- Framfylgir einstaklingsáætlunum í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
- Skráning og meðferð gagna í samræmi við verklag starfsstaðar.
- Tekur þátt í samstarfi við fagaðila, aðra starfsmenn og foreldra/aðstandendur.
- Tekur þátt í fundum og teymisvinnu. sem tengjast starfinu.
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Hæfnikröfur:
- Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum æskileg.
- Áhugi á að starfa með börnum með einhverfu og/eða þekking á einhverfu.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi.
- Íslenskukunnátta B1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
- 20 ára aldurstakmark.
Um er að ræða vaktavinnu í 60-100% hlutfalli, með möguleika á áframhaldandi starfi.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Starfshlutfall
60-100%
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Helena Vignisdóttir, forstöðumaður
696-1908
Heimili fyrir börn
Bleikargróf 6, 108 Reykjavík