Þjónustufulltrúi fasteignaþjónustu
Reykjavíkurborg leitar að iðnmenntuðum einstaklingum til að sinna viðhaldsframkvæmdum á mannvirkjum borgarinnar.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir þjónustufulltrúum fasteignastofu til starfa. Um er að ræða störf við viðhald á mannvirkjum borgarinnar í mismunandi borgarhlutum. Við leitum að einstaklingum með ríka þjónustulund og mikla færni í mannlegum samskiptum sem geta unnið sjálfstætt í verkefnum sem þeim eru falin.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón viðhalds fasteigna Reykjavíkurborgar.
- Daglegt eftirlit í einstaka viðhaldsverkefnum.
- Samstarf við hönnuði, eftirlitsaðila og aðra iðnaðarmenn varðandi viðhald.
- Vinna samkvæmt viðhaldsáætlun.
- Gerð verkáætlana vegna ýmissa smærri viðhaldsverka.
- Starfsmaður sinnir tilfallandi minniháttar vinnu iðnaðarmanna í sínu fagi s.s. lagfæringum og breytingum í fasteignum.
- Eftirfylgni með að tækni- og gæðakröfur séu uppfylltar í viðhaldsframkvæmdum.
- Aðkoma að ákvörðunartöku vegna framkvæmda í ófyrirséðu viðhaldi.
- Skýrslugjöf til fasteignastjóra.
- Móttaka ábendinga frá notendum fasteigna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmeistari eða iðnsveinn með mikla starfs- eða stjórnunarreynslu á sínu fagsviði.
- Framhaldsmenntun er kostur.
- Almenn ökuréttindi.
- Haldbær reynsla við að meta ástand fasteigna og geta til að leiðbeina og hjálpa öðru fagfólki í fasteignatengdum verkefnum með höfuðáherslu á viðhald fasteigna.
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
- Almenn færni í notkun á algengum hugbúnaði sem tengist skrifstofustörfum.
- Íslenskukunnátta B2 og enskukunnátta B1 í samræmi við samevrópskum matsramma fyrir tungumálakunnáttu.
Um vinnustaðinn
- Á umhverfis- og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem auðga mannlífið í borginni. Leiðarljós USK eru aukin lífsgæði í Reykjavík með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg og þar gegnir starfsfólkið lykilhlutverki með einstakri fagþekkingu í þeim málaflokkum sem sviðið sinnir.
- Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi kjarafélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnar Pálsson teymisstjóri fasteignaþjónustu - Ragnar.Palsson@reykjavik.is
- Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2026.