Back to the jobs page

Heimilisfræðikennari óskast til starfa í Árbæjarskóla

Heimilisfræðikennari óskast til starfa við Árbæjarskóla næsta skólaár, haustið 2026. 

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 112 og er starfsandi mjög góður. 

Fullt starf Árbæjarskóli 110
Apply

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 112 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar áhugasamt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Helstu verkefni og ábyrgð

Heimilisfræðikennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur og fagteymi.

Þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum. 

Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.

Hæfniskröfur

Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.

Sérmenntun í heimilisfræði er æskileg.

Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.

Hæfni í samskiptum.

Faglegur metnaður.

Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.

Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Erna Þórhallsdóttir aðstoðarskólastjóri í tölvupósti gudrun.erna.thorhallsdottir@reykjavik.is

eða Guðlaug Sturlaugsdóttir í síma 4117700 og tölvupósti gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is

Apply