Sumarstarf í leikskólanum Funaborg
Leikskólinn Funaborg er stundum kallaður leikskólinn í skóginum. Við erum umkringd trjám og skemmtilegum göngustígum í kringum og meðfram Grafarvoginum.
Við leggjum mikla áherslu á bernskulæsi og frjálsan leik í starfi.
Leikskólinn Funaborg er þriggja deilda leikskóli, en á á næstu árum að verða 7 deilda leikskóli. Funaborgin stendur við Gullinbrú í miklum, fallegum og ævintýralegum skógarlundi
Í Funaborg trúum við að barnið sé hæfur einstaklingur sem getur, skilur, kann og vill. Í félagslegri tengingu við jafningja sína, kennara, foreldra, nærumhverfi sitt og stærra samfélagið verði barnið sterkara, hafi trú á eigin getu og öðlist kjark og þor til að leysa úr eigin vandamálum og flóknum samskiptamynstrum.
Sumarstarf með skemmtilegu fólki og ennþá skemmtilegri börnum og fullt af útiveru í íslensku sumri
Einstaklega spennandi tilboð sem erfitt er að láta fara fram hjá sér.
Skemmtileg myndbönd um Funaborg.
https://vimeo.com/380462481
https://menntastefna.is/tool/myndbond-um-sjalfseflingu-fyrir-starfsfolk-leikskolanna/
Komdu og vertu með!
Helstu verkefni og ábyrgð
Huga að velferð barna, taka þátt í daglegum verkefnum leikskólans undir stjórn deildarstjóra
Hæfniskröfur
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum. https://rm.coe.int/CoERMPublicCommonSearchServices/DisplayDCTMContent?documentId=090000168045bb5c
- Reynsla æskileg af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Elska útivist
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Leikskólastjóri
Agnes Jónsdóttir
agnes.jonsdottir01@rvkskolar.is