Umsjónarkennari í 1. bekk
Melaskóli leitar að metnaðarfullum umsjónarkennara í 1. bekk.
Melaskóli er grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 550 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á menntun og vellíðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góð samskipti við aðstandendur. Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.
Við leitum að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á skólastarfi. Einstaklingi sem hefur óbilandi trú á nemendum, áhuga á menntun þeirra og velferð og er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf.
Í 1. bekk er öflugt teymi kennara og samvinna er til fyrirmyndar.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Annast kennslu nemenda, undirbúning og námsmat í samstarfi og samráði við aðra starfsmenn skólans
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við aðstandendur og annað fagfólk
Helstu menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu
- Reynsla af kennslu æskileg ásamt óbilandi áhuga á að vinna með börnum
- Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Mjög góð íslenskukunnátta (C2)
- Hreint sakarvottorð
Um er að ræða 100% starf til framtíðar.
Nánari upplýsingar veitir Harpa Reynisdóttir skólastjóri, harpa.reynisdottir@reykjavik.is.