Back to the jobs page

Götuleikhús Hins Hússins 2026

Götuleikhús Hins Hússins sér um ýmsar leikrænar uppákomur á götum og torgum borgarinnar. Skapandi, skemmtilegt en jafnframt krefjandi starf fyrir opna og frjóa umsækjendur sem hafa áhuga á leiklist.

Fullt starf Hitt Húsið - Götuleikhús 110
Apply

Götuleikhús Hins Hússins sér um ýmsar leikrænar uppákomur á götum og torgum borgarinnar. Skapandi, skemmtilegt en jafnframt krefjandi starf fyrir opna og frjóa umsækjendur sem hafa áhuga á leiklist og vilja henda sér út í djúpu laugina.

Götuleikhús Hins Hússins er opið umsækjendum á aldrinum 17 - 25 ára og með lögheimili í Reykjavík.

Starfsmenn Götuleikhúss Hins Hússins starfa undir stjórn leikstjóra og búningahönnuðar að sýningum/uppákomum sem haldnar eru á götum og torgum borgarinnar. Götuleikhúsið er starfrækt í 8 vikur og er starfstímabilið frá 26.05. - 17.07. 2026. Unnið er alla virka daga frá kl. 09:00. -17:00. nema mánudaga frá kl. 13:00.-17:00.

Starfsmenn Götuleikhússins fá þjálfun í öllu því helsta sem tengist starfi götuleikhúss. Leikararnir koma að öllum undirbúningi sem viðkemur sýningunum.

Umsækjendur þurfa að hafa lögheimili í Reykjavík. 

Krafa er gerð um hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar. 

Mikilvægt er að þeir sem verða ráðnir geti unnið allt starfstímabilið. 

Allir umsækjendur verða boðnir í leikprufu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ása Hauksdóttir, Deildarstjóri Menningardeildar Hins Hússins. asa.hauksdottir@reykjavik.is 

Apply