Back to the jobs page

Fagfólk óskast í Brúarskóla

Óskað er eftir starfsmanni með menntun og fagþekkingu sem nýtist í starfi, s.s. á sviði sálfræði, þroskaþjálfunar, félagsráðgjafar, uppeldisfræði, atferlisfræði eða iðjuþjálfunar. Meginviðfangsefni er stuðningur við nemendur, bæði námslega og félagslega, ásamt þátttöku í daglegu skólastarfi. Ráðið verður í starfið frá 1. janúar 2027.

Fullt starf Brúarskóli 105
Apply

Helstu verkefni og ábyrgð

Viðkomandi starfar innan stoðþjónustu Brúarskóla og tekur virkan þátt í stuðningi við nemendur og þróun skólastarfs.

Helstu verkefni eru meðal annars:

  • Náið samstarf við stjórnendur, kennara og annað starfsfólk skólans.
  • Skipulagning og framkvæmd félagsfærniþjálfunar í samstarfi við deildarstjóra stoðþjónustu, sérkennara og aðra kennara.
  • Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk varðandi vinnu með nemendum og úrlausn krefjandi aðstæðna.
  • Þátttaka í viðbragðsteymi skólans.
  • Þátttaka í þróun skólastarfs með áherslu á áfallamiðaða nálgun.
  • Bein vinna með nemendum í daglegum aðstæðum með áherslu á félagsfærni, sjálfstjórn og jákvæð samskipti.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði sálfræði, uppeldisfræði, þroskaþjálfunar, tómstunda- og félagsmálafræða eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla af vinnu með börnum sem glíma við hegðunar- og tilfinningavanda er æskileg.
  • Góð samskiptafærni, samstarfshæfni og jákvætt viðmót.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
  • Þekking á starfsemi grunnskóla er æskileg.

Launakjör

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Björnsson, skólastjóri Brúarskóla, í síma 411 7970 eða með tölvupósti á olafur.bjornsson@reykjavik.is.

Apply