Fagfólk óskast í Brúarskóla
Óskað er eftir starfsmanni með menntun og fagþekkingu sem nýtist í starfi, s.s. á sviði sálfræði, þroskaþjálfunar, félagsráðgjafar, uppeldisfræði, atferlisfræði eða iðjuþjálfunar. Meginviðfangsefni er stuðningur við nemendur, bæði námslega og félagslega, ásamt þátttöku í daglegu skólastarfi. Ráðið verður í starfið frá 1. janúar 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
Viðkomandi starfar innan stoðþjónustu Brúarskóla og tekur virkan þátt í stuðningi við nemendur og þróun skólastarfs.
Helstu verkefni eru meðal annars:
- Náið samstarf við stjórnendur, kennara og annað starfsfólk skólans.
- Skipulagning og framkvæmd félagsfærniþjálfunar í samstarfi við deildarstjóra stoðþjónustu, sérkennara og aðra kennara.
- Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk varðandi vinnu með nemendum og úrlausn krefjandi aðstæðna.
- Þátttaka í viðbragðsteymi skólans.
- Þátttaka í þróun skólastarfs með áherslu á áfallamiðaða nálgun.
- Bein vinna með nemendum í daglegum aðstæðum með áherslu á félagsfærni, sjálfstjórn og jákvæð samskipti.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði sálfræði, uppeldisfræði, þroskaþjálfunar, tómstunda- og félagsmálafræða eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
- Þekking og reynsla af vinnu með börnum sem glíma við hegðunar- og tilfinningavanda er æskileg.
- Góð samskiptafærni, samstarfshæfni og jákvætt viðmót.
- Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
- Þekking á starfsemi grunnskóla er æskileg.
Launakjör
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Björnsson, skólastjóri Brúarskóla, í síma 411 7970 eða með tölvupósti á olafur.bjornsson@reykjavik.is.