Fargufur á borgarlandi
Viltu bjóða borgarbúum að slaka á í fargufu? Fargufa er færanleg gufa þar sem gestir hafa aðgang að slökun og vellíðan. Þau sem vilja vera með fargufu á borgarlandi þurfa að sækja um afnotaleyfi og starfsleyfi.
Hvar er hægt að vera með fargufu?
Sumir geta nýtt eigin lóð, en einnig er heimilt að sækja um leyfi til að nýta borgarland Reykjavíkur. Allt svæði utan einkalóða telst til borgarlands. Græn svæði, strendur, stéttir, garðar, torg og götur til dæmis.
Stæði við sjó sem standa til boða eru við Ægisíðu og Eiðsvík.
Aðrar staðsetningar í borgarlandinu eru metnar í hverju tilviki fyrir sig.
1. Afnotaleyfi
Fyrsta skrefið er að sækja um afnotaleyfi fyrir fargufu á borgarlandi. Sótt er um afnotaleyfi fyrir þeirri staðsetningu sem óskað er eftir. Afnotaleyfið fyrir fargufur kallast „Afnotaleyfisumsókn – gámar, ýmis aðstöðusköpun, kvikmyndatökur." Verðskrá afnotaleyfa má nálgast hér, afnotaleyfi í eitt ár fyrir fargufu á borgarlandi fellur undir umfangsflokk 1a - veruleg aðstöðusköpun.
Athugið að einu staðsetningar við sjó sem teknar verða til greina eru við Ægisíðu og Eiðsvík.
Fylgiskjöl með umsókn
- Teikning og ljósmynd af fargufunni. Teikningin þarf að sýna öll mál, fjölda sæta og útganga.
2. Starfsleyfi
Þegar afnotaleyfi liggur fyrir þarf að sækja um starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirlitinu. Athugið að til þess að fá starfsleyfi þarf að uppfylla uppfylla ákvæði 9. og 10. greinar reglugerðar nr. 814/2010 um sund og baðstaði.
Fargufur við sjó
Þegar ákvörðuð er heimil staðsetning fyrir fargufur við sjó þarf að horfa til þess að örverufræðileg gæði strandsjávar séu eins góð og unnt er. Því er nauðsynlegt að setja upp slíka aðstöðu í hæfilegri fjarlægð frá fráveitumannvirkjum sem geta verið uppspretta mengunar. Eins þarf að horfa til aðstæðna í sjónum, svo sem hvort straumar og dýpi geta skapað hættu.
Þær staðsetningar sem eru í boði taka mið af þessum þátt og hafa mælingar sýnt að gæði strandsjávar séu almennt góð á þessum svæðum og ógn við öryggi sé lítil. Hafa þarf í huga að verði bilun í fráveitumannvirkjum geta tímabundið skapast aðstæður þar sem ekki er öruggt að fara í sjóinn.
Reglugerð
Fargufur falla undir Reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.