Frá vegferð til veruleika

Ársskýrsla þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025

Miðlæg stjórnsýsla

Miðlæg stjórnsýsla borgarinnar er staðsett í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Hlutverk hennar er að halda utan um starfsemi borgarstjórnar og borgarstjóra Reykjavíkur ásamt öðrum kjarnaverkefnum sem snúa að stjórnsýslu.

Undir miðlæga stjórnsýslu falla skrifstofa borgarstjóra og borgarritara, skrifstofa borgarstjórnar, skrifstofa samskipta og viðburða, mannréttindaskrifstofa og borgarlögmaður.

Aukin nýting stafrænna lausna

Á árinu hélt áfram þróun fundarumsjónarkerfis borgarstjórnar sem styður við undirbúning og framkvæmd funda. Kerfið heldur meðal annars utan um mælendaskrá, atkvæðagreiðslur og aðra umsýslu funda og stuðlar þannig að skilvirkara, gagnsærra og öruggara fundarumhverfi.

Skrifstofur miðlægrar stjórnsýslu unnu með stafrænum leiðtoga að því að einfalda verkefni skrifstofunnar með aðstoð Microsoft. M.a. voru verkefnaskrár og yfirlit yfir endurtekin verkefni sett upp í Microsoft Lists. Sú innleiðing hefur bætt yfirsýn, samræmingu og utanumhald verkefna auk þess að auðvelda eftirfylgni með verkefnastöðu og verkaskiptingu. Í framhaldi er hægt að sjálfvirknivæða í auknum mæli ferli skrifstofa.

Sjálfvirknivæðing og stafrænt vinnuafl

Á árinu voru möguleikar gervigreindar kannaðir markvisst með það að markmiði að efla skilvirkni og stuðning við dagleg störf.

Í samstarfi við þjónustu- og nýsköpunarsvið var skoðað hvernig Microsoft Copilot og aðrar gervigreindarlausnir gætu stutt við upplýsingavinnslu, verkefnastjórnun og þekkingarmiðlun innan miðlægrar stjórnsýslu. Sú vinna lagði mikilvægan grunn að áframhaldandi þróun og innleiðingu gervigreindarlausna í starfseminni.

Einnig var unnið að sjálfvirknivæðingu verkefna í samstarfi við lausnarsérfræðinga þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Með nýtingu Power Automate og annarra Microsoft lausna voru fjölmörg verkferli einfölduð og dregið úr handvirkri vinnu, sem skapaði aukið svigrúm til verðmætaskapandi verkefna.

Teikning af vélmenni.

Þróun á reykjavik.is

Miðlæg stjórnsýsla tók þátt í þverfaglegu samstarfi með skrifstofu samskipta og viðburða, menningar- og íþróttasviði og vefteymi þjónustu- og nýsköpunarsviðs um verkefnið Framþróun og fjölbreytni á reykjavik.is. Markmið verkefnisins er að færa reykjavik.is á næsta þróunarstig með bættri virkni og framsetningu sem gerir mannlíf borgarinnar sýnilegra og aðgengilegra fyrir íbúa og gesti.

Á árinu var unnið að innleiðingu hönnunar sem áður hafði verið þróuð fyrir vefinn, með sérstakri áherslu á lifandi framsetningu viðburða, menningar, íþrótta og annarrar afþreyingar. Verkefnið styður við áframhaldandi þróun reykjavik.is sem öflugs þjónustu- og upplýsingavefs, um leið og hann endurspeglar fjölbreytt og lifandi samfélag Reykjavíkur.