Frá vegferð til veruleika
Ársskýrsla þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið er stærsta svið Reykjavíkurborgar, með um 170 starfsstöðvar, yfir 6.000 starfsmenn og þjónustu við um 22.000 börn með fjölbreyttan bakgrunn.
Á árinu 2025 hélt sviðið áfram að þróa þjónustu sína með áherslu á stafrænar lausnir, aukna yfirsýn og bætt aðgengi að gögnum og þjónustu.
Skóla-Búi
Innleiðing og þróun Skóla-Búa hélt áfram á árinu og var áfram lykilþáttur í umbreytingu þjónustunnar. Skóla‑Búi, sem sameinar upplýsingar þvert á leikskóla, grunnskóla og frístundastarf, styður við betri yfirsýn yfir þjónustu við hvert barn, einfaldar samvinnu starfsfólks og eykur gagnsæi gagnvart forsjáraðilum. Samhliða innleiðingu jókst notkun kerfisins og magn gagna, sem endurspeglar aukna nýtingu þess í daglegu starfi.
Stafrænir innviðir
Á árinu var jafnframt unnið að frekari uppbyggingu stafrænna innviða. Innleiðing rafrænna eyðublaða fyrir dagforeldra hélt áfram og undirbúningur að nýju námsumsjónarkerfi fór af stað. Framkvæmd var þarfagreining ásamt markaðskönnun, þar sem meðal annars fóru fram vinnustofur, viðtöl og greining á þörfum notenda. Sú vinna leggur grunn að útboði á nýju kerfi sem mun styðja betur við kennslu, samskipti og utanumhald náms.
Einnig var unnið að undirbúningi nýrra umsjónarkerfa fyrir leikskóla og frístundastarf. Samningur við InfoMentor var framlengdur til að tryggja samfellu meðan á þeirri vinnu stendur. Þá var áfram unnið í samstarfi við Miðstöð Menntunar og Skólaþjónustu að þróun nýs nemendagrunns á landsvísu, sem mun bæta samræmi og aðgengi að gögnum í framtíðinni.
Miðlun og samskipti
Áhersla var lögð á að bæta ferla, samskipti og þjónustu við notendur. Innleiðing Abler hélt áfram í félagsmiðstöðvum og styður það við betri yfirsýn og einfaldari samskipti við ungmenni og forsjáraðila. Verkefni um rafrænar beiðnabækur var einnig klárað á árinu. Markmið þess var að innleiða stafrænar lausnir sem gera það kleift að leggja af pappírsbundnar beiðnabækur og einfalda tilfallandi innkaup starfsfólks.
Á árinu náðist mikilvægur áfangi í þróun stafrænna miðla með lokafrágangi vefverkefnis sem fól í sér lénaskipti. Jafnframt var nýr vefur, fristund.is, opnaður, sem hefur bætt aðgengi íbúa að upplýsingum og þjónustu verulega.
Stefnumótun og skipulag
Töluverð áhersla var lögð á stefnumótun og markvissa forgangsröðun verkefna á árinu. Sett var upp verkefnaskrá fyrir stafræn verkefni skóla og frístundasviðs í samræmi við verklag þjónustu- og nýsköpunarsviðs, sem styður við betri yfirsýn yfir verkefni og skýrari ákvarðanatöku. Í tengslum við það fóru fram samtöl við stjórnendur sviðsins til að samræma markmið og framtíðarsýn, þar sem meðal annars var lögð áhersla á bætt aðgengi að gögnum, þróun vinnuferla og markvissari nýtingu tækni, þar á meðal gervigreindar.
Þróunin á árinu endurspeglar skýrt áframhaldandi vegferð í átt að samþættri, gagnadrifinni og notendamiðaðri þjónustu, þar sem áhersla er lögð á að styðja við daglegt starf starfsfólks og bæta upplifun barna og fjölskyldna af þjónustu borgarinnar.