Frá vegferð til veruleika

Ársskýrsla þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025

Um þjónustu- og nýsköpunarsvið

Þjónustu- og nýsköpunarsvið var stofnað árið 2019 og er eitt af þremur kjarnasviðum Reykjavíkurborgar. Hlutverk sviðsins er að veita innri og ytri þjónustu fyrir borgina, styðja við starfsemi fagsviða og leiða þróun á sviði þjónustu, upplýsingatækni, gagna og stafrænna lausna. Sviðið ber jafnframt ábyrgð á rekstri þjónustuvers, stjórnsýsluhúsa og Borgarskjalasafns.

Úr uppbyggingu í sjálfbæran rekstur

Undanfarin ár hefur þjónustu- og nýsköpunarsvið leitt umfangsmikla stafræna umbreytingu innan Reykjavíkurborgar. Byggðir hafa verið upp nýir stafrænir innviðir, þjónustuleiðir og lausnir sem hafa breytt samskiptum borgarinnar við íbúa og starfsfólk. Árið 2025 markaði ákveðin tímamót í þeirri vegferð. Áherslan færðist í auknum mæli frá uppbyggingu nýrra lausna yfir í að tryggja sjálfbæran rekstur, skýrt eignarhald, forgangsröðun og áframhaldandi þróun þeirra kerfa og þjónustu sem þegar hafa verið innleidd.

Stafræn umbreyting er því ekki lengur afmarkað þróunarverkefni heldur sífellt stærri hluti af daglegri starfsemi borgarinnar. Verkefni sviðsins snúast í ríkari mæli um að þróa og reka stafræna þjónustu, mæla árangur hennar og tryggja að hún skili raunverulegum ávinningi fyrir íbúa, starfsfólk og rekstur borgarinnar.

Árið 2025 einkenndist því af þeirri þróun að stafrænar lausnir urðu í auknum mæli hluti af daglegum rekstri borgarinnar. Hlutverk sviðsins er að tryggja að sú þróun byggi á traustum grunni, skýrum markmiðum og stöðugum umbótum þannig að þjónusta Reykjavíkurborgar verði áfram einfaldari, aðgengilegri og öruggari fyrir alla.

Fjölbreytt starfsemi

Starfsemi sviðsins spannar fjölbreytt málaflokka, þar á meðal þróun á þjónustu, upplýsingatækni, gagnastjórnun, skjala- og upplýsingamál, net- og upplýsingaöryggi, stafræna umbreytingu og rekstur sameiginlegra innviða borgarinnar. Á árinu 2025 bættist jafnframt málaflokkur lýðræðis við sviðið þegar lýðræðisverkefni fluttust þangað.

Mikilvægi gagna, upplýsingaöryggis og ábyrgra stafrænna lausna hefur aukist jafnt og þétt samhliða þessari þróun. Áhersla sviðsins er að skapa trausta innviði sem styðja við skilvirka þjónustu, gagnadrifna ákvarðanatöku og ábyrga nýtingu nýrrar tækni. Jafnframt er lögð rík áhersla á persónuvernd, stafrænt aðgengi og að þjónustan sé hönnuð með þarfir ólíkra notendahópa í huga.

Þjónustu- og nýsköpunarsvið kemur að nær öllum þáttum starfsemi Reykjavíkurborgar, allt frá skóla- og velferðarþjónustu til fjármála, skjalamála, opinna gagna, lýðræðisverkefna og stafrænnar þjónustu. Þótt verkefnin séu ólík eiga þau það sameiginlegt að styðja við betri þjónustu, öflugri stjórnsýslu og skilvirkari nýtingu sameiginlegra auðlinda.

Skipulag sviðsins

Þjónustu- og nýsköpunarsvið skiptist í fimm skrifstofur. Hver skrifstofa hefur sérhæft hlutverk en saman mynda þær sterka heild þar sem lögð er áhersla á skapandi samvinnu, gagnkvæmt traust og virðingu.

Stafræn Reykjavík

Stafræn Reykjavík leiðir stafræna þróun Reykjavíkurborgar og heldur utan um vefmál, verkefna- og vörustýringu og starfsemi stafrænna leiðtoga.

Skrifstofan veitir ráðgjöf í stafrænum verkefnum og styður við forgangsröðun verkefna í stafrænni umbreytingu borgarinnar. Hún sér jafnframt um samskipti við stjórnsýslu borgarinnar, lögfræðiþjónustu, gæða- og áhættustýringu og almannatengsl.

Á árinu 2025 var starfsemi vef- og vöruþróunar endurskoðuð til að mæta auknum kröfum um rekstur og áframhaldandi þróun stafrænna lausna. Í kjölfarið var einingunni skipt upp í tvær sjálfstæðar deildir:

  • Vefdeild
  • Deild vörustýringar

Skrifstofustjóri: Þröstur Sigurðsson

Teikning af litlu fólki stýra vörum á tölvuskjá.

Þjónusta og umbreyting

Skrifstofan ber ábyrgð á samræmdri framlínuþjónustu Reykjavíkurborgar og rekstri þjónustuvers.

Hún leiðir innleiðingu þjónustustefnu borgarinnar og vinnur að stafrænni umbreytingu og endurhönnun þjónustuferla með áherslu á notendamiðaða þjónustu og samræmda þjónustuupplifun.

Skrifstofustjóri: Arna Ýr Sævarsdóttir

Motta með textanum aðgengilegt.

Gagna- og hugbúnaðarþróun

Á árinu 2025 tók skrifstofan við nýju hlutverki og nafni þegar Gagnaþjónustan varð að skrifstofu gagna og hugbúnaðarþróunar.

Skrifstofan ber ábyrgð á gagnastjórnun og hagnýtingu gagna í starfsemi borgarinnar ásamt þróun hugbúnaðarlausna sem styðja við þjónustu og rekstur.

Markmið skrifstofunnar er að efla gagnavitund, stuðla að betri nýtingu gagna í ákvarðanatöku og tryggja að stafrænar lausnir byggi á traustum upplýsingum og skýru eignarhaldi.

Skrifstofustjóri: Inga Rós Gunnarsdóttir

Teikning af gamalli tölvu að springa.

Upplýsinga- og skjalastýring

Skrifstofan veitir ráðgjöf um upplýsinga- og skjalamál þvert á alla borgina.

Hún sér um faglega þróun mála- og skjalavistunarkerfisins GoPro og upplýsingastjórnunarkerfisins Hlöðunnar.

Skrifstofan ber einnig ábyrgð á innleiðingu, eftirliti og framkvæmd skjalastefnu Reykjavíkurborgar.

Skrifstofustjóri: Óskar Þór Þráinsson

Teikning af excel skjali og word skjali að horfa á hvort annað.

Upplýsingatækni

Skrifstofan rekur upplýsingatækniinnviði borgarinnar og sér um þróun og rekstur tæknilegra lausna fyrir starfsemi Reykjavíkurborgar.

Hún ber ábyrgð á samskiptum og samningum við birgja, rekstri sameiginlegra upplýsingatækniinnviða og stjórnsýsluhúsa borgarinnar.

Skrifstofustjóri: Ólafur Sólimann Helgason

Teikning af fartölvu.

Framkvæmdastjórn

Í framkvæmdastjórn þjónustu- og nýsköpunarsviðs sitja lykilstjórnendur sviðsins.

Stjórnin fundar reglulega yfir árið og fjallar um fagstarf, mannauðsmál, stefnumótun og framkvæmd ákvarðana.

Fundirnir eru vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræður um sameiginleg úrlausnarefni.

Framkvæmdastjórn 2025:

  • Arna Ýr Sævarsdóttir
  • Bryndís Kristjánsdóttir
  • Inga Rós Gunnarsdóttir
  • María B. Hermannsdóttir
  • Ólafur Sólimann Helgason
  • Óskar J. Sandholt
  • Óskar Þór Þráinsson
  • Þröstur Sigurðsson

 

Skipurit Þjónustu- og nýsköpunarsviðs