Fyrsti í aðventu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

–

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Múlavegur 3, 104 Reykjavík

Fyrsti í aðventu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Heimsókn til dýranna, föndursmiðja í veitingaskálanum hjá Bæjarins Beztu, hringekjan snýst, matarvagnar og ljúfir tónar frá Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts. Fræðandi ratleikur og hugrakkir gestir geta heimsótt Jólaköttinn. Hefðbundinn aðgangseyrir.

Dýradagskrá – fóðurgjafir og fróðleikur

10:30 Hreindýr
11:00 Selir
11:30 Refir
14:00 Umhverfisauðgun hjá selunum
15:30 Hreindýr
15:45 Smádýr og fuglar
16:00 Selir
16:30 Nautgripir og svín

15:00–19:00
Föndursmiðja í veitingaskálanum

15:00–20:00
Hringekjan opin
Matarvagnar við útigrillin

17:00–18:00
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts spilar

Allan daginn
Ratleikur fyrir fróðleiksfúsa gesti
Jólakötturinn tekur á móti hugrökkum gestum við rugguskipið

All events