Viðburðir
Í Reykjavík er alltaf eitthvað um að vera
Opnunarhátíð Jóladalsins í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Múlavegur 3, 104 Reykjavík
Dagskrá opnunarhátíðar Jóladalsins laugardaginn 28. nóvember
Uppfært 27. nóvember þar sem ljóst er að áður auglýst skautasýning verður ekki.
Kl. 15:00 - 17:00
Föndursmiðja með Þykjó í veitingaskálanum
Rúningur í fjárhúsum
Kl. 15:00 - 18:00
Jólasveinar flakka um garðinn
Hringleikur ráfar um með jólasirkusatriði
Útieldun með Miðstöð útivistar og útináms við rugguskipið
Kl. 15:00 - 20:00
Matarvagnar við útigrillin
Hringekjan opin
Kl. 16:00 | Skemmtidagskrá á sviði við vesturenda tjarnarinnar
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts leikur tvö lög
Jólaatriði frá Hringleik
Leikþáttur með Langlegg og Skjóðu
Kl. 16:30 - 17:30
Sönghópur frá Listaháskóla Íslands syngur víða um garðinn
Kl. 17:45
Bestu lög barnanna á sviðinu
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er kominn í jólabúning þar sem ótal jólaljós lýsa upp garðinn og skapa einstaka stemningu í skammdeginu. Garðurinn verður opinn alla virka daga frá kl. 10 til 17 og um helgar frá kl. 10 til 20 alla aðventuna.
Fyrstu þrjár aðventuhelgarnar verður sérstök jóladagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna. Á laugardögum verða skemmtilegir viðburðir fyrir alla aldurshópa en á sunnudögum verður notaleg aðventustemning með föndri og tónlist. Gestum gefst einnig kostur á að taka þátt í útieldun við opinn eld og njóta veitinga frá matarvögnum á svæðinu. Einnig verður opið hjá Bæjarins Beztu.
Jólaratleikur fyrir hressa krakka verður í gangi allan desember og hugrakkir gestir geta heimsótt jólaköttinn sem hefur komið sér fyrir í garðinum líkt og undanfarin ár. Hann heldur til í hryssingslegum kofa austast í Fjölskyldugarðinum.
Auk þess verður hefðbundin dagskrá í kringum dýrin, þar sem gestir geta fræðst um íbúa garðsins og notið samvista við þau í rólegu og hátíðlegu umhverfi.
Hefðbundinn aðgangseyrir gildir.