Jólaskreytingar

–

Grasagarður Reykjavíkur, Grasagarðurinn

Jólaskreytingar
Í aðdraganda aðventunnar bjóða garðyrkjufræðingar Grasagarðsins og meðlimir í Garðyrkjufélagi Íslands gestum og gangandi í garðskála Grasagarðsins upp á fræðslu um jólaskreytingar úr náttúrulegum efniviði.

Fáið góð ráð frá okkur varðandi útfærslur á jólaskreytingum og leiðisskreytingum auk þess sem handtökin við kransagerð úr birki verða kennd.

Þátttakendur koma sjálfir með það efni sem þeir hyggjast nota, svo sem hringi, bönd, vír, sígrænt efni og annað skraut auk greina- og vírklippa en einnig verður lítil efnisveita á staðnum með öðru náttúrulegu efni, s.s. birki og víði.

Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.

Viðburðurinn er hluti af fræðsludagskrá Grasagarðsins, haldinn í samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands og hentar öllum aldurshópum.

All events