Viðburðir
Í Reykjavík er alltaf eitthvað um að vera
Þræðir - Dansinn höfum við danskinum frá: Birtingarmynd þjóðdansa á Íslandi
Landnámssýningin Aðalstræti, Aðalstræti 16, 101 Reykjavík
Þann 24. nóvember kl. 16:00-17:00 verður flutt sjöunda erindið í fyrirlestraröðinni Þræðir á Landnámssýningunni Aðalstræti. Ókeypis inn og öll velkomin!
Erindið fer fram á íslensku.
Í þetta sinn mun Atli Freyr Hjaltason þjóðfræðingur kynna rannsókn sína á þjóðdönsum á Íslandi, hvernig þeir birtast í fræðilegri umræðu, lifandi hefð og í sögulegu samhengi bæði í íslensku- og norrænu samhengi.
Að fyrirlestri loknum verða ólíkir þjóðdansar stignir undir leiðsögn Atla Freys.
Viðburðurinn er haldinn í góðu samstarfi Borgarsögusafns og Félags þjóðfræðinga á Íslandi.
Aðgengi fyrir hreyfihamlað fólk í Aðalstræti er gott. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).