Hannyrðastund í Úlfarsárdal

–

Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 128, 113 Reykjavík

Hannyrðastund í Úlfarsárdal
Ert þú algjör prjónasnillingur, byrjandi í hekli eða lengra kominn í krossaumi? Skiptir ekki öllu, samveran og félagskapurinn er gefandi.

Borgarbókasafnið Úlfarsárdal býður upp á notalegan samastað til þess að hittast með handavinnuna, fá sér kaffi og spjalla um daginn og veginn alla þriðjudaga frá kl. 13:00-15:00. Hópurinn hittist vikulega frá byrjun september fram í lok maí.

Á safninu er úrval af bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim.

Engin skráning - Öll velkomin!

Nánari upplýsingar veitir:
borgarbokasafn@borgarbokasafn.is

All events