Söguheimar

–

Borgarbókasafnið Sólheimum, Sólheimar 23, 104 Reykjavík

Söguheimar
Vitiði þið hvað? Það er komin ný söguslóð í Sólheimasafn! Nýja slóðin heitir Söguheimar. Nú hafa nýir bókavinir barnanna flutt inn í safnið og þau búa hér og þar í hillum fullorðinsdeildarinnar, alveg eins og síðast. Húsin og staðirnir sem þið eigið að leita að eru tíu talsins og bækurnar sem vitnað er í eru bæði eftir íslenska og erlenda höfunda.

Eins og síðast fáið þið vísbendingar um hvernig þið eigið að leita og svo fáið þið þrjá svarmöguleika fyrir rétt svar. Ein spurningin er svona „hvar eru“ spurning, – þið komist að því sjálf hvers konar gáta það er.

Allir staðirnir eru merktir með númeri og þið fáið spurningablað í afgreiðslunni og svarblað sem þið fyllið út. Vasaljós og stækkunargler fáið þið í afgreiðslunni.

Verið með og að takið þátt í Söguheimum ein, með vinum eða með fjölskyldunni!

Öll velkomin!

Nánari upplýsingar: Sigrún J. Kristjánsdóttir, 411-6160 sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is

All events