Örleiðsögn um sýningar | Hafnarhús

–

Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík

Örleiðsögn um sýningar | Hafnarhús
Daglegar stuttar leiðsagnir bjóða upp á ferska og lifandi nálgun að sýningum Listasafns Reykjavíkur.
Starfsfólk safnsins leiðir gesti um valin verk og opnar nýjar leiðir inn í listina á skýran og aðgengilegan hátt.

Nú standa yfir tvær áhugaverðar sýningar í Hafnarhúsi; Karin Sander: 1957–2057 og Erró: Remix, ásamt úrvali af Víðáttum.

Í leiðsögninni fá gestir tækifæri til að staldra við, skoða nánar og dýpka skilning sinn á lykilverkum sýninganna — stutt, skýrt og hnitmiðað.

All events