Foreldramorgnar í Hallgrímskirkju

–

Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík

Foreldramorgnar í Hallgrímskirkju
Á miðvikudagsmorgnum kl. 10:00–12:00 eru foreldramorgnar í kórkjallara Hallgrímskirkju (gengið inn bakdyramegin).
Samverurnar eru fyrir foreldra/umsjónar- og forráðamenn auk barna þeirra.

Fjölskyldur á öllum aldri eru hjartanlega velkomnar og henta þessar stundir sérstaklega þeim sem eru í fæðingarorlofi eða heimavinnandi.
Foreldramorgnar eru notaleg stund þar sem markmiðið er að efla félagsleg tengsl foreldra og barna í hlýju og opnu umhverfi.

Söngstund er kl. 11:00.
Stundum kíkir góður gestur í heimsókn.
Ömmur, afar og au-pair velkomin.

Boðið er upp á hressingu.

Hlýtt andrúmsloft, góð samvera og gleði fyrir stór og smá.
Umsjón með foreldramorgnum hafa Ragnheiður Bjarnadóttir, píanókennari, og Olga Helgadóttir.

Foreldramorgnar eru einnig með Facebook-hóp: Parents’ Mornings at Hallgrímskirkja / Hallgrimskirkja Playgroup

HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR BARNANNA

All events