Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar eru veitt ár hvert í minningu Tómasar Guðmundssonar fyrir óprentað handrit að ljóðabók. Dómnefnd verðlaunanna er skipuð af borgarráði og er hún skipuð þremur einstaklingum.
Dómnefnd Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar 2023 hefur nú lokið störfum og haft hefur verið samband við verðlaunahafann. Við þökkum öllum sem sendu inn handrit í samkeppnina í ár og bendum á að hægt er að senda skeyti til bokmenntaborgin@reykjavik.is og biðja um að handrit séu tekin til hliðar, óski viðkomandi eftir að sækja handirit sitt aftur. Að öðrum kosti fara öll ósótt handrit í örugga gagnageyðingu 1. nóvember 2023.
Hvernig tek ég þátt?
Senda skal inn til Reykjavíkurborgar áður óútgefið handrit að ljóðabók, frumsamið á íslensku. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila í þremur eintökum, merktum dulnefni, en nafn og símanúmer fylgi með í lokuðu umslagi.
Handrit berist í síðasta lagi miðvikudaginn 1.júní 2024.
Utanáskrift sendinga:
- Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
- b.t. Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO
- Borgartúni 12-14
- 105 Reykjavík
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður að starfa með. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendinguna niður það ár.
Hver eru verðlaunin?
Verðlaunahafi hlýtur verðlaunafé. Það er greitt af Reykjavíkurborg og eru ein verðlaun veitt árlega í vetrarbyrjun. Árið 2022 verður upphæð verðlaunanna 1.000.000 krónur.
Hver skipar dómnefnd?
Dómnefnd til verðlaunanna er skipuð af menningar- og ferðamálaráði til eins árs í senn. Hana skipa þrír fulltrúar, þar af einn samkvæmt tilnefningu Rithöfundasambands Íslands, annar samkvæmt tilskipun Félags íslenskra bókaútgefenda og þriðji samkvæmt skipun Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO, sem jafnframt skipar formann.