Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur

Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur voru stofnuð árið 2018 til heiðurs Guðrúnu Helgadóttur rithöfundi. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir óprentað handrit að barna- eða ungmennabók og styðja þannig við nýsköpun í greininni. Dómnefnd verðlaunanna er skipuð þremur einstaklingum sem les öll innsend handrit og velur verðlaunahafa. Skrifstofa Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO hefur umsjón með verðlaununum.
Opnað hefur verið fyrir rafræna innsendingu handrita fyrir árið 2025 og verður opið fyrir innsendingu til 1. maí 2025. Skil á rafrænu formi eru mikilvægt skref í átt að auknu öryggi, skilvirkni og umhverfisvænum lausnum, í stað skila á pappír í þríriti líkt og áður var.
Sendu inn handrit fyrir 2025 hér fyrir neðan.
Hver eru verðlaunin?
Verðlaunahafi hlýtur verðlaunafé ásamt viðurkenningunni sjálfri. Verðlaunaféð er greitt af Reykjavíkurborg og eru ein verðlaun veitt árlega í kring um afmælisdag Guðrúnar Helgadóttur 7. september. Árið 2025 verður upphæð verðlaunanna 1.000.000 krónur.
Hvernig tek ég þátt?
Handritum skal skilað rafrænt á .pdf-formi hér á síðunni og verður það hægt til 1. maí 2025. Handritin eru geymd á læstu svæði og eytt tveimur vikum eftir að dómnefnd hefur komist að niðurstöðu. Nafnleynd höfunda verður eftir sem áður tryggð í þessu ferli, þar sem innsendingarnar verða unnar í aðgangsstýrðu kerfi sem tryggir að dómnefnd fær handritin einungis merkt dulnefnum, rétt eins og áður.
Hver á útgáfuréttinn?
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður að starfa með.
Hvernig er dómnefnd skipuð?
Dómnefnd verðlaunanna er skipuð af menningar-, íþrótta- og tómstundaráði til eins árs í senn. Hana skipa þrír fulltrúar, þar af einn samkvæmt tilnefningu Rithöfundasambands Íslands, annar samkvæmt tilskipun IBBY á Íslandi og þriðji samkvæmt skipun Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO, sem jafnframt skipar formann.
Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendingu niður það ár.