Málþing á Hönnunarmars
Málþing þar sem þjónustuhönnun (e. civic design) í starfsemi Reykjavíkurborgar verður til umfjöllunar sem og hönnunarhugsun, sem er sú aðferðafræði sem Reykjavíkurborg beitir nú markvisst við þjónustuumbreytingu.
Málþingið fer fram í Kaldalóni í Hörpu fimmtudaginn 5. maí kl. 14:00-16:00
Dagskrá
Við heyrum átta erindi frá hönnuðum úr hópi starfsfólks Reykjavíkurborgar sem gefa góða og skemmtilega innsýn inn í hvernig unnið er að þjónustuhönnun hins opinbera.
Í lokin verður pallborð þar sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Paul Bennett, Ragnheiður H. Magnúsdóttir ræða opinbera þjónustuhönnun, en umræðurnar leiðir Fjóla María Ágústsdóttir.
- kl. 14:00 - Fundarstjóri opnar viðburðinn
- kl. 14:10 - Styrmir Erlingsson: Ráðgjafinn
- kl. 14:20 - Árni Jónsson og Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir: Að spyrja og prófa
- kl. 14:30 - Búi Bjartmar Aðalsteinsson: Spjallað í pottinum
- kl. 14:40 - Ævar Harðarson: Ný sýn á hverfi Reykjavíkur
- kl. 14:50 - Halla María Ólafsdóttir og Eva Jakobsdóttir: „Mér finnst svo gott þegar þú spyrð mig hvernig mér líður í vinnunni“
- kl. 15:00 - Már Örlygsson: Hönnuð hönnun (og Hanna nú!)
- kl. 15:10 - Unnar Geir Unnarsson: „Næsasta bókasafn í lífinu!“
- kl. 15:20- Embla Vigfúsdóttir og Gró Einarsdóttir: Ferðalag Ísaks frá málþroskavanda til úrlausnar
- kl. 15:30 - Pallborðsumræður
- kl. 16:00 - Opnun sýningar og léttar veitingar
Erindi
1. Ráðgjafinn
Ráðgjafinn er ný lausn fyrir íbúa og starfsfólk í velferðarþjónustu borgarinnar. Styrmir Erlingsson, framkvæmdastjóri rafrænnar þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar, fjallar um þróun lausnarinnar, tækifærin sem felast í henni og hvaða hlutverki lausnin gegnir í stafrænni vegferð velferðarsviðs.
2. Að spyrja og prófa
Árni Jónsson, forstöðumaður Laugardalslaugar og Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri miðlunar og nýsköpunar á Borgarbókasafninu segja örsögu um hvernig er hægt að bregðast við örum samfélagsbreytingum í opinberri þjónustu og umhverfi hennar.
3. Spjallað í pottinum
Búi Bjartmar Aðalsteinsson, þjónustuhönnuður, skautar yfir aðferðir í viðtölum og greiningarvinnu tengda Ylströndinni ásamt því að taka snúning á nokkrum af afurðum vinnunnar. Auk þess verður spáð og spekúlerað í mikilvægi samtals við notendur og þjónustuþega.
4. Ný sýn á hverfi Reykjavíkur
Ævar Harðarson frá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar beina kastljósinu að Hverfasjánni: stafrænni upplýsingagátt þar sem nálgast má skilmála í hverfum sem hafa fengið hverfisskipulag. Tilgangurinn með hverfasjá er að bæta aðgengi að upplýsingum og stytta málsmeðferð skipulagsmála í Reykjavík.
5. „Mér finnst svo gott þegar þú spyrð mig hvernig mér líður í vinnunni“
Halla María Ólafsdóttir, verkefnastjóri, og Eva Jakobsdóttir, þjónustuhönnuður, unnu saman í teymi að umbreytingu á þjónustu Skóla- og frístundasviðs. Traustið og skilningurinn í samstarfinu varð til þess að brjóta niður veggi milli sviða og stuðla að nýrri sýn á þjónustu og vinnulag. Halla og Eva ræða um stafræna umbreytingu á þjónustu, hið svokallaða kúltúrhakk.
6. Hönnuð hönnun (og Hanna nú!)
Hvort er hönnunarkerfi meira stjórnarskrá, samskiptastaðall eða tvíhliða varnarsamningur milli forritunar- og hönnunarteyma? Már Örlygsson viðmótssérfræðingur ræðir hvernig kerfisbundin hönnun flýtir framkvæmd, lækkar kostnað og eykur gæði og aðgengileika rafrænnar þjónustu hjá Reykjavíkurborg.
7. „Næsasta bókasafn í lífinu!“
Þegar Borgarbókasafnið í Úlfarsárdal opnaði núna í desember þá á ungur bókasafnsgestur að hafa sagt þessi fleygu orð við félagana. En hvernig verður bókasafn næs? Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal, segir frá vinnunni sem býr að baki og hvernig starfsfólk Borgarbókasafnsins nýtti sér meðal annars aðferðir þjónustuhönnunar í ferlinu.
8. Ferðalag Ísaks frá málþroskavanda til úrlausnar
Hvernig getur listrænn leikjahönnuður og doktor í félagssálfræði hjálpað Ísaki að fá þjónustu við hæfi? Embla Vigfúsdóttir og Gró Einarsdóttir ræða um hvernig er hægt að beita leikjavæðingu og valhönnun í stafrænni umbreytingu á skólaþjónustu fyrir börn sem þurfa á stuðningi að halda til að bæta líðan sína og finna farveg fyrir styrkleika sína.
Pallborð
- Dagur B. Eggertsson er borgarstjóri í Reykjavík. Dagur er oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn og fyrrverandi varaformaður flokksins. Hann hefur gegnt embætti borgarstjóra frá árinu 2014. Dagur er læknismenntaður og er með meistaragráðu í Mannréttindum og alþjóðalögum frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Hann er fæddur í Osló en uppalinn í Árbæjarhverfi, sonur Eggerts Gunnarssonar dýralæknis og Bergþóru Jónsdóttur lífefnafræðings.
- Paul Bennett er listrænn stjórnandi IDEO. Sem eigandi og einn af fimm lykilstjórnendum fyrirtækisins vinnur Paul náið með viðskiptavinum og samstarfsaðilum að þjónustumiðuðum, vinsælum og samfélagslega mikilvægum fyrirtækjum, vörum, þjónustu og upplifunum. Hann hefur borið ábyrgð á gæðakröfum IDEO og er virkur í þróun þjónustu- og hönnunarmiðaðar nýsköpunar.
- Ragnheiður H. Magnúsdóttir, eða Ragga eins og hún er oftast kölluð, er lykilaðili innan íslenska nýsköpunar- og frumkvöðla geirans. Hún er framkvæmdastjóri Maggar og sérhæfir sig í stafrænni umbreytingu, nýsköpun, breytingastjórnun, stefnu, viðskiptaáætlunum og vöruþróun. Ragga hefur viðamikla reynslu í stjórnun og sérstaklega þegar kemur að stafrænni umbreytingu og breytingastjórnun. Ragga þekkir vel þá vinnu sem unnin hefur verið í stafrænni umbreytingu innan borgarinnar.
- Fjóla María Ágústsdóttir mun stýra pallborðsumræðunum. Hún er breytingastjóri stafrænna umbreytinga hjá Sambandi íslenskra sveitafélaga og var áður verkefnastjóri og þjónustuhönnuður hjá Stafrænu Íslandi. Fjóla María hefur unnið að endurskipulagningu, endurhönnun, breytingum og að innleiða breytingar hjá stjórnvöldum með hönnun á betri þjónustu í gegnum samstarf sveitafélaga í stafrænni umbreytingu, starfsfólki þess og íbúa.