Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur

Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur voru stofnuð árið 2018 til heiðurs Guðrúnu Helgadóttur rithöfundi. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir óprentað handrit að barna- eða ungmennabók og styðja þannig við nýsköpun í greininni.
Hvenær er skilafrestur?
Skilafrestur handrita fyrir samkeppnina árið 2023 er 17. október 2022.
Hvernig tek ég þátt?
Senda skal inn til Reykjavíkurborgar óbirt handrit að skáldverki fyrir börn eða unglinga, frumsömdu á íslensku. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila í þríriti merktum dulnefni, en nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi. Handrit berist í síðasta lagi 17. október 2022.
Utanáskrift handrita:
Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur
b.t. Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO
Ráðhúsi Reykjavíkur
Tjarnargötu 11
101 Reykjavík.
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður að starfa með. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendingu niður það ár.
Hver eru verðlaunin?
Verðlaunahafi hlýtur verðlaunafé. Verðlaunaféð er greitt af Reykjavíkurborg og eru ein verðlaun veitt árlega að vori samhliða verðlaunaafhendingu Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar. Árið 2021 var upphæð verðlaunanna 1 milljón króna.
Hver skipar dómnefnd?
Dómnefnd til verðlaunanna er skipuð af menningar-, íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkurborgar til eins árs í senn. Hana skipa þrír einstaklingar, tilnefndir af menningar-, íþrótta-, og tómstundaráði, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO og Rithöfundasambandi Íslands.
Handrit sem borist hafa í keppnina
Eftir að vinningshafi hvers árs er kynntur geta aðrir sem áttu handrit í keppninni vitjað þeirra á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar í Ráðhúsi við Tjarnargötu 11. Handrita sem tóku þátt í samkeppninni 2022 skal vitja fyrir 1. júní 2022. Eftir það er handritunum eytt. Gefa þarf upp dulnefni því aðeins er opnað umslag með nafni vinningshafa.
Verðlaunahafar frá upphafi
2022: Verðlaunin voru ekki veitt þar sem ekkert handrit þótti uppfylla þær kröfur sem gerð eru til verðlaunaverka.
2021: Margrét Tryggvadóttir: Sterk
2020: Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir: Blokkin á heimsenda.
2019: Bergrún Íris Sævarsdóttir: Kennarinn sem hvarf.