Til sölu: Færanleg húseining við Breiðholtsskóla

Reykjavíkurborg óskar eftir tilboðum í færanlega húseiningu úr timbri sem staðsett er við Breiðholtsskóla í Arnarbakka 1-3.  

Færanlegar húseiningar - Breiðholt

Um er að ræða einingu merkta H-10. Einingin er 108,5 m2 að flatarmáli skv. Þjóðskrá. 

Færanlegar húseiningar - Breiðholt

Reykjavíkurborg leggur ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á einingunni og veitir Reykjavíkurborg allan nauðsynlegan aðgang til þess. Áhugasamir geta skoðað eininguna samkvæmt nánara samkomulagi við seljanda og skal beiðni þess efnis send á esr@reykjavik.is 

Einingin selst í því ástandi sem hún er í við skoðun. 

Afhending fer fram við kaupsamning og þarf kaupandi að fjarlægja húseininguna af lóðinni strax við afhendingu. Kaupandi sér um og aflar tilskilinna leyfa fyrir flutningi og/eða niðurrifi og ber fulla ábyrgð á framkvæmdinni. Kaupandi skal ganga þannig frá lóðinni að vegfarendum stafi ekki hætta af. Frágangur lagna í jörðu verður í höndum seljanda. 

Seljandi mun afskrá húseininguna strax við afhendingu og er það á ábyrgð kaupanda að yfirfæra viðeigandi tryggingar. 

  • Tilboðsfrestur er til og með 15. nóvember, 2024 

Borgarráð ákveður hvort tilboði er tekið eða því er hafnað. Áskilinn er réttur Reykjavíkurborgar til þess að hafna öllum tilboðum. 

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur.