Lóð fyrir 65 íbúðir við Nauthólsveg

Reykjavíkurborg auglýsir til sölu byggingarrétt fyrir íbúðarhúsnæði á lóðinni Nauthólsvegur 79

Lóð fyrir 65 íbúðir við Nauthólsveg.

Byggingarréttur til sölu

Á lóðinni Nauthólsvegur 79 er heimilt að byggja allt að 65 íbúðir í 3-5 hæða íbúðarhúsnæði í randbyggð, auk tveggja stakstæðra húsa 2-3 hæða, allt að 5.070 mofanjarðar (A+B rými) og 2.365 mneðanjarðar. Gert er ráð fyrir atvinnu- og/eða þjónustuhúsnæði á jarðhæð meðfram hluta Nauthólsvegar og Flugvallarvegar.
Bílastæði verða ofanjarðar og í bílageymslum neðanjarðar.

Aðeins lögaðilar geta boðið í byggingarréttinn.

Félagsbústaðir hf., kt. 510497-2799, eiga kauprétt á 6 íbúðum í húsum á lóðinni. Kaupverð hvers birts fermetra á íbúð og geymslu er 490.000 kr., bundið byggingarvísitölu.

Verð fyrir byggingarétt á lóðinni er 715.700.000 kr. Auk greiðslu fyrir byggingarrétt þarf lóðarhafi að greiða gatnagerðargjald í samræmi við gildandi samþykkt Reykjavíkurborgar um gatnagerðargjald.

Gögn eru aðgengileg hér fyrir neðan. Undirrituðum umsóknum skal skilað með rafrænum hætti á póstfangið lodir@reykjavik.is.

Umsóknir skulu vera á sérstöku eyðublaði sem skrifstofa borgarstjóra og borgarritara leggur.

Gæta skal þess að umsóknir lögaðila séu staðfest af þeim sem hefur/hafa heimild til að skuldbinda félagið.