Leit að kaupendum fyrir Alliance húsið

Reykjavíkurborg auglýsir eftir áhugasömum kaupendum að fasteign sinni og uppbyggingarréttindum að Grandagarði 2.

Alliance húsið og nágrenni þess.

Alliance húsið er í góðum hlutföllum, tvær sambyggðar álmur með inndreginni millibyggingu, sem eru í gullinsniði hvor við aðra hvað breiddina varðar. Húsið er ekki ofhlaðið skrauti, enda atvinnuhúsnæði, en er með markvissri og fagurri gluggasetningu sem sniðin er að upphaflegri notkun þess.

Einfalt útlit þess getur því vel talist vitnisburður um góða byggingarlist. Húsið var byggt sem saltverkunarhús og hefur mikið menningarsögulegt gildi sem vitnisburður um þá atvinnustarfsemi er eitt sinn einkenndi gamla Vesturbæinn. Það er lítið breytt frá upprunalegri gerð og hefur mikið gildi fyrir umhverfi sitt á hafnarsvæðinu.

Bjóðendur skulu skila greinargerð og uppdrætti til skýringar á hugmyndum sínum á reitnum. Við mat á tilboðum gildir verðhugmynd helming til móts við aðra þætti. Hluti hússins er í dag leigður út til nokkurra aðila. 

Boðið verður upp á vettvangsferð um húsið fyrir áhugasama bjóðendur samkvæmt samkomulagi. 

Bjóðendur eru eindregið hvattir til að kynna sér mikilvæga þætti matsferlis við val á innsendu kauptilboði. 

Þeir snúa m.a. að skipulagsmálum og þá sérstaklega frumleika og tengingu við umhverfi auk þess sem samfélagsleg tenging hvað skipulag varðar er mikilvæg. Til viðbótar byggir matið á aðgengi að húsnæðinu og reitnum um leið og hönnun og framsetning er mikilvæg.

Við hönnun er horft til gæði tenginga og aðlögun að umhverfinu, gæði borgarhönnunar í hugmyndum bjóðenda auk áformaðra gæða einkarýma. Þessu til viðbótar snýst mat hönnunar um þá nýbreytni sem fram kemur í hönnunarhugmyndum.

Auk ofangreindra þátta um skipulag og hönnun við mat á kauptilboðum byggir það einnig á hugmyndum bjóðenda um sjálfbærni og kolefnisfótspor sem vænta má við nýtingu svæðisins og rýmisins. Boðið kaupverð nemur 50% á móti ofangreindum þáttum við mat á kauptilboðum. 

Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum. Kauptilboð skal að lágmarki nema Kr. 850.000.000,-  

Umsóknum skal skilað í lokuðu umslagi merkt "Alliance - Grandagarður 2" í Þjónustuver Reykjavíkurborgar eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 7. september 2022.

Allar nánari upplýsingar veitir Eignaskrifstofa Reykjavíkur esr@reykjavik.is.

Um Grandagarð 2  

Reykjavíkurborg festi kaup á húsinu árið 2012. Lokið er framkvæmdum við ytra byrði hússins sem hefur verið gert upp í anda fyrri tíma. Í dag eru nokkur fyrirtæki starfrækt í húsinu. Þau eru Sögusafnið, Norðurljósasýning og veitingastaðurinn Matur og Drykkur. Einnig leigja nokkrir listahópar aðstöðu á efri hæðum hússins.   

Í greinargerð deiliskipulags fyrir lóðina kemur eftirfarandi fram varðandi húsið:  Grandagarður 2, Alliance húsið, var friðað af menntamálaráðherra 3. febrúar 2010 með vísan til 1.mgr 4.gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001. Friðun nær til ytra borðs aðalhúss. Húsið er úr steinsteypu og byggt á árunum 1924 til 1925 eftir teikningum Guðmundar H. Þorlákssonar húsameistara. Það er talið hafa mikið byggingarlistarlegt gildi sem dæmi um glæsilegt höfundarverk Guðmundar.

Alliance húsið

Alliance húsið er í góðum hlutföllum, tvær sambyggðar álmur með inndreginni millibyggingu, sem eru í gullinsniði hvor við aðra hvað breiddina varðar. Húsið er ekki ofhlaðið skrauti, enda atvinnuhúsnæði, en er með markvissri og fagurri gluggasetningu sem sniðin er að upphaflegri notkun þess. Einfalt útlit þess getur því vel talist vitnisburður um góða byggingarlist.

Húsið var byggt sem saltverkunarhús og hefur mikið menningarsögulegt gildi sem vitnisburður um þá atvinnustarfsemi er eitt sinn einkenndi gamla Vesturbæinn. Það er lítið breytt frá upprunalegri gerð og hefur mikið gildi fyrir umhverfi sitt á hafnarsvæðinu. 

Nýverið var samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir lóðina þar sem tækifæri skapast til að byggja húsnæði fyrir nýja, áhugaverða starfsemi á lóðinni.   

Með hliðsjón af sögulegu mikilvægi hússins og staðsetningu er haldin samkeppni þar sem kaupverð er metið til helminga á móts við aðra þætti.

Matsreiknir

Matsþáttur Möguleg stig
1. Frumleiki og tenging við umhverfi 10
2. Samfélagsleg tenging 10
3. Aðgengi 5
4. Hönnun  
4.1 Framúrskarandi hönnun 4
4.2 Gæði tenginga / aðlögun við umhverfi 4
4.3 Gæði borgarhönnunar 4
4.4 Gæði einkarýma 4
4.5 Nýbreitni 4
Hönnun samtals: 20
5. Sjálfbærni og kolefnisfótspor 5
Boðið kaupverð 50
Samtals stigafjöldi 100