Kauptilboð í spennandi byggingarrétt í Vesturbugt
Reykjavíkurborg leitar eftir kauptilboðum í byggingarrétt ofan- og neðanjarðar fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði á tveimur lóðum í Vesturbugt. Annars vegar er um að ræða byggingarétt á lóðinni Hlésgata 1 og hins vegar byggingarétt á lóðinni Hlésgata 2.
![I'd like to get to a tourney tonight. Event will be out soon. Anyone here interested? @everyone](/sites/default/files/styles/original_4k/public/2024-06/20240410_hlesgata1-skyggt.jpg?itok=qdsWWkqg)
Hlésgata 1
Á lóðinni Hlésgata 1 er heimilt að byggja allt að 110 íbúðir í 2-5 hæða í húsum í randbyggð. Heildarbyggingarmagn lóðarinnar er 17.120 m2, sem skiptist með þeim hætti að alls um 10.710 m2 eru íbúðarhúsnæði, um 790 m2 eru atvinnu- og þjónustu- húsnæði, og allt að 5.620 m2 eru kjallararými.
Félagsbústaðir hf., kt. 510497-2799, eiga kauprétt á 7 íbúðum sem dreifa skal í nokkra stigaganga í húsum á lóðinni. Kaupverð Félagsbústaða hf. vegna hvers birts fermetra á íbúð og geymslu er 585.000 kr. bundið byggingarvísitölu. Jafnframt á Félagsstofnun stúdenta, kt. 540169-6249, kauprétt á 33 íbúðum á lóðinni. Kaupverð Félagsstofnunar stúdenta vegna hvers birts fermetra á íbúð og geymslu er 750.000 kr. bundið byggingarvísitölu.
![Vesturbugt](/sites/default/files/styles/original_medium/public/2024-06/20240410_hlesgata2-skyggt.jpg?itok=na4-s-_8)
Hlésgata 2
Á lóðinni Hlésgata 2 er heimilt að byggja allt að 67 íbúðir í 2-4 hæða í húsum í randbyggð. Heildarbyggingarmagn lóðarinnar er 10.368 m2, sem skiptist með þeim hætti að, alls um 6.170 m2 eru íbúðarhúsnæði, um 630 m2 eru atvinnu- og þjónustuhúsnæði, og allt að 3.568 m2 eru kjallararými.
Félagsbústaðir hf., kt. 510497-2799, eiga kauprétt á 7 íbúðum á 1. hæð í húsi F á lóðinni. Um er að ræða húsnæði fyrir fatlað fólk. Kaupverð Félagsbústaða hf. vegna hvers birts fermetra á íbúð og geymslu er 585.000 kr. bundið byggingarvísitölu. Jafnframt á Félagsstofnun stúdenta, kt. 540169-6249, kauprétt á 17 íbúðum á lóðinni. Kaupverð Félagsstofnunar stúdenta vegna hvers birts fermetra á íbúð og geymslu er 750.000 kr. bundið byggingarvísitölu.
![Vestur](/sites/default/files/styles/original_medium/public/2024-06/renderinghofn.jpg?itok=MlZZC7eW)
Sameiginleg ákvæði
- Undirrituðum tilboðum skal skila með rafrænum hætti á útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en kl. 12.00, föstudaginn 5. júlí 2024.
Gæta skal þess að tilboð lögaðila séu staðfest af þeim sem hefur/hafa heimild til að skuldbinda félagið.
Niðurstaða útboðs er birt á útboðsvef Reykjavíkurborgar og í þessari auglýsingu að tíma loknum.