Kauptilboð í byggingarrétt á lóðinni Haukahlíð 4

Reykjavíkurborg leitar eftir kauptilboðum í byggingarrétt fyrir íbúðarhúsnæði á lóðinni Haukahlíð 4.

Uppfært 8. ágúst 2022: Kauptilboð hafa verið opnuð. 

Séð yfir Hlíðarenda og Haukahlíð

Byggingarréttur til sölu

Á lóðinni Haukahlíð 4, er heimilt að byggja húsnæði undir íbúðarhúsnæði allt að 17.500 A fermetrar og 1.600 B fermetrar ofanjarðar, samtals 19.100 fermetrar íbúðarhúsnæði ofanjarðar. Fjöldi hæða er 3-5. Áhersla er á fjölbreyttar stærðir íbúða. Hámark 0,75 bílastæði pr. íbúð og 2 hjólastæði pr. íbúð. Bílastæði skulu leyst innan lóðar í bílakjallara.

Útboðsgögn

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 12:00, föstudaginn 8. júlí 2022, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is.  

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Undirrituðum tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en kl. 12:00 þann 8. ágúst 2022.

Gæta skal þess að tilboð lögaðila séu staðfest af þeim sem hefur/hafa heimild til að skuldbinda félagið.

Niðurstaða útboðs er birt á útboðsvef Reykjavíkurborgar og á slóðinni https://reykjavik.is/lodir