Færanleg húseining til flutnings

Reykjavíkurborg býður til sölu færanlegar húseiningar sem staðsettar eru á lóð Fossvogsskóla, Haðalandi 26, 108, Reykjavík. Hver eining er 14,8 m2 eða 74 m2úr gámaeiningum, byggt 2017. Einingar eru merktar S19-S23 á yfirlitsmynd, sjá fyrir neðan. Byrjunarverð er 450.000,- kr. sem samsvarar um 6081- kr. pr. m2.

Skoðun og tengiliðir

Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér ástand einingarinnar vel, fá til liðs við sig sérfræðinga eins og við á og gæta árvekni við skoðun og úttekt. Hægt er að skoða eininguna eftir samkomulagi. Tengiliður í Fossvogsskóla er Ólafur Þór Árnason í síma 411 8139, netfang: olafur.tor.arnason@reykjavik.is.

Skilmálar: Eining selst í núverandi ástandi. Einingarnar eru í slæmu ásigkomulagi innanhúss vegna raka. Kaupandi ber ábyrgð á flutningi, leyfum og frágangi lóðar þannig að ekki hljótist hætta af fyrir gangandi vegfarendur. Frágangur lagna í jörðu er á ábyrgð seljanda. Kaupanda ber að flytja einingar strax við kaupsamning eða nánara samkomulagi við seljanda. Eignirnar verða afskráðar við kaupsamning og ber kaupandi ábyrgð á að flytja tryggingar á sitt nafn. Tryggingar eru á ábyrgð kaupanda eftir afhendingu. Sala fasteigna hjá Reykjavíkurborg er með fyrirvara um samþykki borgarráðs.

Gögn með auglýsingu

Uppboðsgjald kaupanda vegna gáma og húseininga reiknast 5% ofaná boð.

Færanlegt húsnæði