Blesugróf 27 er til sölu
Reykjavíkurborg hyggst selja eignina Blesugróf 27, Reykjavík, F2294777. Um er að ræða 493,3 fermetra tvílyft einbýli sem notað hefur verið sem vistheimili.
Eignin skiptist þannig:
- Íbúðarhluti á tveimur hæðum: 397,1 fermetrar
- Vinnuherbergi undir bílskúr: 62,1 fermetrar
- Bílageymsla 34,1 fermetrar.
Húsnæðið er staðsteypt og málað að utan og járn er á þakinu. Afgirtur garður er framan við hús. Í dag er lóðin kringum húsið uppgrafin þar sem byrjað var á að leggja drenlagnir kringum húsið.
Áhugasamir tilboðsgjafar eru hvattir til að kynna sér mjög vel ástand eignar og lóðar. Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun væntanlegra kaupenda.
Ásett verð er 135.000.000,- kr.
Tilboð verða fyrst tekin til skoðunar eftir kl. 13:00 þann 18. apríl n.k.
Nánari upplýsingar má finna hjá eftirfarandi fasteignasölum sem eru með eignina í söluferli:
[Vefsíða uppfærð 18. júní 2024]