Blesugróf 27 er til sölu

Reykjavíkurborg hyggst selja eignina Blesugróf 27, Reykjavík, F2294777. Um er að ræða 493,3 fermetra tvílyft einbýli sem notað hefur verið sem vistheimili. 
 

Blesugróf 27

Eignin skiptist þannig:

  • Íbúðarhluti á tveimur hæðum: 397,1 fermetrar
  • Vinnuherbergi undir bílskúr: 62,1 fermetrar
  • Bílageymsla 34,1 fermetrar.

Húsnæðið er staðsteypt og málað að utan og járn er á þakinu. Afgirtur garður er framan við hús. Í dag er lóðin kringum húsið uppgrafin þar sem byrjað var á að leggja drenlagnir kringum húsið. 

Áhugasamir tilboðsgjafar eru hvattir til að kynna sér mjög vel ástand eignar og lóðar. Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun væntanlegra kaupenda.

Ásett verð er 170.000.000,- kr.

Tilboð verða fyrst tekin til skoðunar eftir kl. 13:00 þann 18. apríl n.k.

Nánari upplýsingar má finna hjá eftirfarandi fasteignasölum sem eru með eignina í söluferli: