Frá vegferð til veruleika

Ársskýrsla þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025

Fjármál og lykiltölur

Ársuppgjör sviðsins árið 2025 byggist á fjárheimildum, tekjum og útgjöldum þeirra eininga sem tilheyra sviðinu. Heildarrekstur sviðsins var samtals 4.607 milljónir króna (m.kr.) en endurskoðuð áætlun ársins var 4.594 m.kr. og var rekstur sviðins því í heild um 12,7 m.kr yfir áætlun eða um 0,28%.

Heildarfjárfesting sviðsins á árinu var samtals 1.524 m.kr en áætlun ársins gerði ráð fyrir fjárfestingum að fjárhæð 1.730 m.kr. Fjárfesting var því 206 m.kr. undir áætlun, sem jafngildir 11,9% lægri fjárfestingu en gert var ráð fyrir.

Rekstur

Rekstrarkostnaður sviðsins var sem fyrr segir 4.607 m.kr. en þar af var rekstur upplýsingatækniþjónustu samtals 2.651 m.kr og var stærsti einstaki rekstrarþátturinn, eða um 58% af heildarrekstrarkostnaði sviðsins.

Rekstur upplýsingatækniþjónustu var 204 m.kr. umfram áætlun á árinu, sem skýrist að mestu af hærri launakostnaði og auknum rekstrarkostnaði. Þessi frávik endurspegla meðal annars ört vaxandi umfang og aukið álag í rekstri UT-innviða, sem hefur kallað á aukna verktöku til að tryggja samfellu í þjónustu og upplýsingaöryggi.

Rekstrarkostnaður rekstrarþjónustu sviðsins, það er rekstrarkostnaður Höfðatorgs og Ráðhússins, var samtals 505 m.kr.  eða um 11% af heildarrekstrarkostnaði sviðsins.

Heildarrekstrarkostnaður við þjónustu og umbreytingu var samtals 505 m.kr. eða um 11% af heildarrekstrarkostnaði sviðsins.

Teikning af köku með lógó Reykjavíkurborgar, kökusneið og servíettur.

Rekstur eftir einingum

Eining Raun 2025 Endurskoðuð 
áætlun 2025
Frávik á raun og 
endurskoðaðri 
áætlun í %
Raun 2024 Breyting milli 
ára, í %
Borgarskjalasafn 203 208 -2,4% 199 2,3%
Gagnaþjónusta 51 110 -53,1% 70 -27,2%
Upplýsinga- og skjalastýring 170 204 -16,7% 160 6,5%
Rekstrarþjónusta 505 510 -1,1% 548 -7,9%
Stafræn Reykjavík 282 322 -12,5% 343 -18,0%
Miðlæg skrifstofa ÞON 239 260 -8,1% 192 24,5%
Upplýsingatækniþjónusta 2.651 2.447 8,3% 2.690 -1,4%
Þjónusta og umbreyting 505 533 -5,1% 409 23,6%
Samtals 4.607 4.594 0,28% 4.611 -0,1%
Upphæðir í milljónum króna.

Fjárfestingar

Heildarfjárfesting sviðsins árið 2025 var samtals 1.524 m.kr. Fjárfestingaráætlun ársins gerði ráð fyrir 1.730 m.kr.

Mest var fjárfest í notendabúnaði og upplýsingatækniinnviðum, fyrir 579 m.kr. eða um 38% af heildarfjárfestingu ársins.

Fjárfestingar í hugbúnaði og nýjum upplýsingakerfum voru 323 m.kr. eða 21% af heildarfjárfestingu ársins.

Fjárfestingar í vöruþróun og stafvæðingu ferla voru 252 m.kr. eða um 17% af heildarfjárfestingu ársins.   

Teikning af peningagrís og peningum.